Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Hamraborg 14A, Al-Amir (Tania ehf.). Beiðni um umsögn vegna umsóknar um rekstrarleyfi og lengdan opnunartíma

Málsnúmer: 1305262

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2689. fundur

Frá bæjarlögmanni, lagt fram bréf sýslumannsins í Kópavogi, dags. 10. maí, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Tania ehf., kt. 470909-1610, um breytingu á rekstrarleyfi til að mega reka veitingastað/greiðasölu í flokki II, á staðnum Al-Amir, að Hamraborg 14, 200 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 23. gr. rgl. nr. 585/2007. $line$Leyfisbeiðandi óskar þess að opnunartími verði lengri en ákvæði 2. mgr. 25. gr. reglugerðar nr. 1127/2007 um lögreglusamþykktir kveður á um. Óskar leyfisbeiðandi þess að opnunartími verði til kl. 23:00 alla daga í samræmi við reglugerð en þó verði opið til kl. 01:00 aðfararnótt laugardags, sunnudags eða almenns frídags. Sveitarstjórn hefur heimild skv. 2. mgr. 25. gr. reglugerðar nr. 1127/2007 til þess að samþykkja þessa beiðni.

Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti og staðfestir að staðsetning er í samræmi við gildandi skipulag.