Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Auðbrekka 9-11. Viðbygging.

Málsnúmer: 1305505

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2695. fundur

Skipulagsnefnd samþykkir framlagða breytingartillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.

Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar og samþykkir breytingartillöguna.

02

Skipulagsnefnd - 1228. fundur

Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju erindi, THG arkitekta, f.h. lóðarhafa varðandi viðbyggingu að Auðbrekku 9-11. Lóðarhafi hyggst rífa viðbyggingu vestanmegin við húsið og koma fyrir brunastiga úr stáli á þeim gafli. Stiginn verður léttur stálstigi með stálvirki og opnum trérimlum í kring, s.s. opið rými sbr. uppdráttum dags. 3.5.2013. Á fundi skipulagsnefndar 27.5.2013 var samþykkt með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna tillöguna fyrir lóðarhöfum Auðbrekku 7, 8, og 10 ásamt Dalbrekku 2 og 4. Einnig skal nánari útfærsla á fyrirhuguðum skiltum á húsinu vera gerð í samráði við skipulags- og byggingardeild og byggingarfulltrúa. Kynningu lauk 8. júlí 2013. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust.

Skipulagsnefnd samþykkir framlagða breytingartillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.

03

Skipulagsnefnd - 1226. fundur

Lagt fram erindi, THG arkitekt, f.h. lóðarhafa varðandi viðbyggingu að Auðbrekku 9-11. Lóðarhafi hyggst rífa viðbyggingu vestanmegin við húsið og koma fyrir brunastiga úr stáli á þeim gafli. Stiginn verður léttur stálstigi með stálvirki og opnum trérimlum í kring, s.s. opið rými sbr. uppdráttum dags. 3.5.2013.

Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna tillöguna fyir lóðarhöfum Auðbrekku 7, 8, og 10 ásamt Dalbrekku 2 og 4. Einnig skal nánari útfærsla á fyrirhuguðum skiltum á húsinu vera gerð í samráði við skipulags- og byggingardeild og byggingarfulltrúa.