Óskað eftir formlegu samþykki um einfalda og hlutfallslega ábyrgð vegna lántöku.
Málsnúmer: 1305724
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2695. fundur
Tillaga samþykkt í bæjarráði um einfalda og hlutfallslega ábyrgð vegna lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga.
<P style="MARGIN: 0cm 0cm 0pt" class=MsoNormal><FONT face=Calibri>Bæjarráð Kópavogs, í umboði bæjarstjórnar vegna sumarleyfis hennar, sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, samþykkir að veita einfalda og hlutfallslega ábyrgð miðað við eignarhluti 1. janúar 2013 í Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins bs. vegna 254.000.000 kr. lántöku fyrirtækisins hjá Lánasjóði sveitarfélaga til 21 árs í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem liggja fyrir fundinum. Er einföld og hlutfallsleg ábyrgð þessi veitt skv. heimild í 2 mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga og veitir bæjarráð lánasjóðnum veð í tekjum sínum til tryggingar ofangreindri ábyrgð skv. heimild í 2.mgr. 68. gr sömu laga. Ábyrgðin tekur til allra greiðslna sem og hvers kyns kostnaðar sem hlýst af vanskilum. Er lánið tekið til byggingar á nýrri slökkvistöð við Skarhólabraut í Mosfellsbæ, sem fellur undir lánshæf verkefni sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Bæjarráð Kópavogs skuldbindur hér með sveitarfélagið sem einn eigenda Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. til að selja ekki félagið að neinu leyti til einkaaðila. Fari svo að Kópavogsbær selji eignarhlut í Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins bs. til annarra opinberra aðila, skuldbindur Kópavogsbær sig til að sjá til þess að jafnframt yfirtaki nýr eigandi á sig ábyrgð á láninu að sínum hluta. Jafnframt er Ármanni Kr. Ólafssyni, bæjarstjóra, kt. 170766-5049 veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess að staðfesta f.h. Kópavogsbæjar veitingu ofangreindrar veðtryggingar og til þess að móttaka, undirrita og gefa út og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast veitingu tryggingar þessarar.</FONT></P>
02
Bæjarstjórn - 1079. fundur
Frá stjórn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs., dags. 27. maí, óskað eftir formlegu samþykki sveitarfélagsins um einfalda og hlutfallslega ábyrgð vegna lántöku. Bæjarráð vísaði afgreiðslu til bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir einróma tillögu um einfalda og hlutfallslega ábyrgð vegna lántöku.
03
Bæjarráð - 2690. fundur
Frá stjórn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs., dags. 27. maí, óskað eftir formlegu samþykki sveitarfélagsins um einfalda og hlutfallslega ábyrgð vegna lántöku.
Bæjarráð vísar afgreiðslu til bæjarstjórnar.