Melgerði 20-22. Kynning á byggingarleyfi.
Málsnúmer: 1306550
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1081. fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar. Fjórir samþykkja og einn situr hjá.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar og samþykkir tillöguna með 11 atkvæðum.
02
Bæjarráð - 2698. fundur
Lagt fram að nýju erindi Rafns Kristjánssonar f.h. lóðarhafa Melgerðis 20 og 22. Sótt er um að byggja ofan á svalir á 2. hæð og leggja núverandi býslag á suðurhlið hússins. Gluggum verður bætt við á vestur- og austurhlið sbr. uppdráttum dags. 3.6.2013 í mkv. 1:100. $line$Skipulagsnefnd samþykkti 2. júlí 2013 með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna umrædda breytingu fyrir lóðarhöfum Melgerðis 18, 19, 21, 24 og Borgarholtsbrautar 35, 37 og 39. Kynningu lauk 9.8.2013. $line$Engar athugasemdir eða ábendingar bárust. $line$Samþykkt. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar. Fjórir samþykkja og einn situr hjá. Guðríður Arnardóttir bókar eftirfarandi: Ég hef óskað eftir að fundargerðinni verði vísað til bæjarstjórnar eins og öðrum fundargerðum. Ómar Stefánsson bókar eftirfarandi: Erindi sem afgreidd eru án mótatkvæða í bæjarráði hljóta þar með fullnaðarafgreiðslu.
03
Skipulagsnefnd - 1229. fundur
Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju erindi Rafns Kristjánssonar f.h. lóðarhafa Melgerðis 20 og 22. Sótt er um að byggja ofan á svalir á 2. hæð og leggja af núverandi býslag á suðurhlið hússins. Gluggum verður bætt við á vestur- og austurhlið sbr. uppdráttum dags. 3.6.2013 í mkv. 1:100. Skipulagsnefnd samþykkti 2. júlí 2013 með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna umrædda breytingu fyrir lóðarhöfum Melgerðis 18, 19, 21, 24 Borgarholtsbrautar 35, 37 og 39. Kynningu lauk 9.8.2013. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust.
Samþykkt. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
04
Skipulagsnefnd - 1227. fundur
Lagt fram erindi Rafns Kristjánssonar f.h. lóðarhafa Melgerðis 20 og 22. Sótt er um að byggja ofan á svalir á 2. hæð að leggja af núverandi býslag á suðurhlið hússins. Gluggum verður bætt við á vestur- og austurhlið sbr. uppdráttum dags. 3.6.2013 í mkv. 1:100.
Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna umrædd breytingu fyrir lóðarhöfum Melgerðis 18, 19, 21, 24 Borgarholtsbrautar 35, 37 og 39.