Waldorfskólinn, viðhald fasteigna
Málsnúmer: 1306721
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2693. fundur
Rannveig Ásgeirsdóttir, Margrét Björnsdóttir, Ómar Stefánsson og Hjálmar Hjálmarsson taka undir svohljóðandi bókun Gunnars Inga Birgissonar og Ómars Stefánssonar frá fundi framkvæmdaráðs 26. júní sl.:<EM>"Bendum á að mengun á þessu svæði í Lækjarbotnum frá Hellisheiðarvirkjun Orkuveitunnar fer yfir viðmiðunarmörk, sem er óásættanlegt. Því er full ástæða til að krefjast þess að Orkuveitan bæti úr strax."</EM>
02
Framkvæmdaráð - 53. fundur
Frá deildarstjóra eignadeildar
Í minnisblaði deildarstjóra eignadeildar dags. 24. júní sl. er gerð grein fyrir nauðsynlegum endurbótum skólahúsnæðis Waldorfskólans í Lækjarbotnum, sem þurfa að koma til framkvæmda á þessu ári og næstu árum. Í minnisblaðinu kemur fram að á þessu ári er gert ráð fyrir að endurnýja útveggi og glugga í 1. áfanga endurbóta og er kostnaður áætlaður um kr. 5.000.000.- sbr. lið 31. í fjárhagsáætlun 2013. Bókun Ómars Stefánssonar og Gunnars I. Birgissonar: "Bendum á að mengun á þessu svæði í Lækjarbotnum frá Hellisheiðarvirkjun Orkuveitunnar, fer yfir viðmiðunarmörk, sem er óásættanlegt. Því er full ástæða til að krefjast þess að Orkuveitan bæti úr strax."