Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Smáraskóli, lausar kennslustofur

Málsnúmer: 1306737

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2697. fundur

Á fundi framkvæmdaráðs, 21. ágúst var eftirfarandi bókað: $line$Sviðsstjóri gerði grein fyrir niðurstöðu auglýsingar eftir tilboðum í tvær færanlegar kennslustofur á lóð Smáraskóla. Framkvæmdaráð samþykkir að mæla með við bæjarráð að samið verði við hæstbjóðanda, Skjót ehf.$line$

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu framkvæmdaráðs.

02

Framkvæmdaráð - 54. fundur

Sviðsstjóri gerði grein fyrir niðurstöðu auglýsingar eftir tilboðum í tvær færanlegar kennslustofur á lóð Smáraskóla. Framkvæmdaráð samþykkir að mæla með við bæjarráð að samið verði við hæstbjóðanda, Skjót ehf.Guðríður Arnardóttir bókar að heppilegra sé að tilboðum sé skilað inn í lokuðum umslögum og opnuð með formlegum hætti í votta viðurvist.Ármann Kr. Ólafsson bókar að vel hafi verið að verki staðið. Gunnar I. Birgisson, Ármann Kr. Ólafsson og Ómar Stefánsson bóka að tilboð bárust bæði í umslögum og á rafrænum hætti og voru opnuð eftir að tilboðsfresti lauk og ekkert óeðlilegt við þetta ferli.

03

Bæjarráð - 2693. fundur

Í minnisblaði deildarstjóra eignadeildar dags. 25. júní sl. er lagt til að heimilað verði að selja tvær lausar kennslustofur, sem eru á lóðinni við Smáraskóla. Líklegt er að kennslustofurnar séu um 45 ára gamlar. Þær eru af óhentugri stærð og þarfnast mikils viðhalds.$line$Framkvæmdaráð samþykkir að tvær lausar kennslustofur við Smáraskóla verði auglýstar til sölu og niðurstaða verði kynnt framkvæmdaráði. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.$line$

Bæjarráð staðfestir afgreiðslu framkvæmdaráðs og heimilar að auglýstar verði til sölu tvær lausar kennslustofur, sem eru á lóðinni við Smáraskóla.

04

Framkvæmdaráð - 53. fundur

Frá deildarstjóra eignadeildar

Í minnisblaði deildarstjóra eignadeildar dags. 25. júní sl. er lagt til að heimilað verði að selja tvær lausar kennslustofur, sem eru á lóðinni við Smáraskóla. Líklegt er að kennslustofurnar séu um 45 ára gamlar. Þær eru af óhentugri stærð og þarfnast mikils viðhalds.Framkvæmdaráð samþykkir að tvær lausar kennslustofur við Smáraskóla verði auglýstar til sölu og niðurstaða verði kynnt framkvæmdaráði. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.