Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Austurkór 63-65. Breytt deiliskipulag.

Málsnúmer: 1306855

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1088. fundur

Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar. Lóðargjöld verði innheimt samkvæmt breyttu deiliskipulagi.

Bæjarstjórn samþykkir með átta atkvæðum tillögu að breyttu deiliskipulagi. Þrír bæjarfulltrúar sátu hjá. Lóðargjöld verði innheimt samkvæmt breyttu deiliskipulagi.

02

Bæjarráð - 2712. fundur

Skipulagsnefnd telur að lóðarhafi hafi á sannfærandi hátt komið til móts við athugasemdir sem bárust á kynningartíma og samþykkir framlagða breytingartillögu. Lóðarhafa skal bent á að lóðargjöld verða innheimt samkvæmt breyttu deiliskipulagi. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar. Lóðargjöld verði innheimt samkvæmt breyttu deiliskipulagi.

03

Skipulagsnefnd - 1233. fundur

Lagt fram erindi Kristins Ragnarssonar arkitekts, f.h. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar nr. 63-65 við Austurkór. Í breytingunni felst að íbúðum er fjölgað um eina eða úr 29 í 30. Erindið var fyrst lagt fram á fundi skipulagsnefndar 2.7.2013 og var íbúðum þá fjölgað um tvær eða úr 29 í 31. Skipulagsnefnd samþykkti þá að grenndarkynna tillöguna fyrir lóðarhöfum Austurkórs 59, 61 og Auðnukórs 1. Að lokinni kynningu barst athugasemd frá lóðarhöfum Austurkórs 59 og 61. Erindið var lagt fram að nýju á fundi skipulagsnefndar 5.11.2013 ásamt umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 5.11.2013. Erindinu var þá frestað og skipulagsstjóra falið að vinna frekar að málinu.$line$$line$Lögð fram ný tillaga dags. 15.10.2013 í mkv. 1:500 þar sem íbúðum í húsi nr. 63 er fjölgað um eina. Ný íbúð verður vestanmegin á 3. hæð hússins, sem verður inndregin um 7,5m á vesturhlið.

Skipulagsnefnd telur að lóðarhafi hafi á sannfærandi hátt komið til móts við athugasemdir sem bárust á kynningartíma og samþykkir framlagða breytingartillögu. Lóðarhafa skal bent á að lóðargjöld verða innheimt samkvæmt breyttu deiliskipulagi. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

04

Skipulagsnefnd - 1227. fundur

Lagt fram erindi Kristins Ragnarssonar, arkitekts fh. lóðarhafa dags. 27. júní 2013 þar sem óskað er eftir að fjölga íbúðum í Austurkór 63 um tvær sbr. uppdrátt í mkv. 1:500 ásamt skýringarmyndum.

Skipulagsnefnd samþykkir að grenndarkynna tillöguna fyrir Austurkór 59, 61 og Auðnukór 1.