Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Perlukór 10, stækkun byggingarreits og bygging bílgeymslu.

Málsnúmer: 1307075

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1081. fundur

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar. Fjórir samþykkja og einn situr hjá.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar og samþykkir tillöguna með 11 atkvæðum.

02

Bæjarráð - 2698. fundur

Lagt fram að nýju erindi Kjartans Rafnssonar, K.J. Hönnun ehf., þar sem sótt er um að stækka byggingarreit til austur við Perlukór 10 og byggja þar auka bílskúr. Samþykki aðliggjandi lóðarhafa að Perlukór 12 liggur fyrir. Skipulagsnefnd samþykkti 2. júlí 2013 með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að senda tillöguna í grenndarkynningu til lóðarhafa Perlukórs 3 a, b, c, d og 12. Einnig var kynningin send til lóðarhafa Perlukórs 3e. Kynningu lauk 15.8.2013. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust.$line$$line$Samþykkt. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar$line$

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar. Fjórir samþykkja og einn situr hjá. Guðríður Arnardóttir bókar eftirfarandi: Ég hef óskað eftir að fundargerðinni verði vísað til bæjarstjórnar eins og öðrum fundargerðum. Ómar Stefánsson bókar eftirfarandi: Erindi sem afgreidd eru án mótatkvæða í bæjarráði hljóta þar með fullnaðarafgreiðslu.

03

Skipulagsnefnd - 1229. fundur

Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju erindi Kjartans Rafnssonar, K.J. Hönnun ehf., þar sem sótt er um að stækka byggingarreit til austur við Perlukór 10 og byggja þar auka bílskúr. Samþykki aðliggjandi lóðarhafa að Perlukór 12 liggur fyrir. Skipulagsnefnd samþykkti 2. júlí 2013 með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að senda tillöguna í grenndarkynningu til lóðarhafa Perlukórs 3 a, b, c, d og 12. Einnig var kynningin send til lóðarhafa Perlukórs 3e. Kynningu lauk 15.8.2013. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust.

Samþykkt. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

04

Skipulagsnefnd - 1227. fundur

Lögð fram tillaga Kjartans Rafnssonar, K.J. Hönnun ehf. þar sem sótt er um að stækka byggingarreit til austur við Perlukór 10 og byggja þar auka bílskúr. Samþykki aðliggjandi lóðarhafa, Perlukór 12 liggur fyrir.

Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að senda tillöguna í genndarkynningu til lóðarhafa Perlukórs 3 a, b, c, d og 12.