Dalsmári 13. Stækkun Tennishallar. Breytt deiliskipulag.
Málsnúmer: 1307121
Ferill máls
01
Skipulagsnefnd - 1279. fundur
Frá skipulagsstjóra, dags. 28. júní, að lokinni kynningu er lögð fram að nýju tillaga að stækkun tennishallarinnar frá Tennisfélagi Kópavogs og Tennishöllinni dags. 8.9.2015. Tillagan var til sýnis á skipulags- og byggingardeild frá 16.11.2015 til 11.1.2016. Þá var tillagan auglýst í Fréttablaðinu 13.11.2015 og í Lögbirtingarblaðinu 16.11.2015. Þá var dreifibréf sent 17.11.2015 í íbúðarhús í nágrenni Tennihallarinnar til að vekja athygli á auglýstri tillögu. Kynningu lauk 11.1.2016. Athugasemdir og ábendingar bárust á kynningartíma. Að auki bárust erindi til bæjaryfirvalda þar sem mælt var með stækkun Tennishallarinnar. Að auki barst undirskriftalisti með fyrirsögninni "Við styðjum stækkun Tennishallar" með 507 undirskriftum, mótt. 11.1.2016. Á fundi skipulagsnefndar 18.1.2016 var samþykkt að unnið yrði úr innsendum athugasemdum og málið lagt fyrir 1272. fund skipulagsnefndar til afgreiðslu. Lögð fram tillaga að umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 15.2.2016. Einnig lögð fram tillaga skipulagsstjóra að mögulegri lausn dags. 15.2.2016. Skipulagsnefnd samþykkti kynnta tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir Dalsmára 13 og ofangreinda umsögn, og vísaði málinu til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
02
Bæjarstjórn - 1140. fundur
Frá skipulagsstjóra, dags. 28. júní, að lokinni kynningu er lögð fram að nýju tillaga að stækkun tennishallarinnar frá Tennisfélagi Kópavogs og Tennishöllinni dags. 8.9.2015. Tillagan var til sýnis á skipulags- og byggingardeild frá 16.11.2015 til 11.1.2016. Þá var tillagan auglýst í Fréttablaðinu 13.11.2015 og í Lögbirtingarblaðinu 16.11.2015. Þá var dreifibréf sent 17.11.2015 í íbúðarhús í nágrenni Tennihallarinnar til að vekja athygli á auglýstri tillögu. Kynningu lauk 11.1.2016. Athugasemdir og ábendingar bárust á kynningartíma. Að auki bárust erindi til bæjaryfirvalda þar sem mælt var með stækkun Tennishallarinnar. Að auki barst undirskriftalisti með fyrirsögninni "Við styðjum stækkun Tennishallar" með 507 undirskriftum, mótt. 11.1.2016. Á fundi skipulagsnefndar 18.1.2016 var samþykkt að unnið yrði úr innsendum athugasemdum og málið lagt fyrir 1272. fund skipulagsnefndar til afgreiðslu. Lögð fram tillaga að umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 15.2.2016. Einnig lögð fram tillaga skipulagsstjóra að mögulegri lausn dags. 15.2.2016. Skipulagsnefnd samþykkti kynnta tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir Dalsmára 13 og ofangreinda umsögn, og vísaði málinu til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Sverrir Óskarsson lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Undirritaður vill vekja athygli á að framlögð skipulagstillaga, sem hefur verið til umfjöllunar hjá skipulagsnefnd vegna Dalsmára 13 (Tennishöllin) stenst að mati undirritaðs ekki skipulagslög og er í andstöðu við aðalskipulag Kópavogs (sjá mynd á glæru 5 í fundargerð svæðisskipulagsnefndar frá 18. mars). Ekki er heimilt að byggja mannvirki á svæði sem skilgreint er sem opið svæði og fara með byggingar yfir óskylda landnotkunarflokka, sbr. aðalskipulag Kópavogs, 12. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og kærumál úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála nr. 79/2013. Farsælast væri að bjóða Tennisfélaginu og okkur sem höfum gaman af tennis nýja aðstöðu í nýju byggingarhverfi í efri byggðum Kópavogs, þar sem bæði er gott svæði fyrir svona hallir og aukið aðgengi fyrir íbúa í efri hverfum Kópavogs að tennisvöllum. $line$Sverrir Óskarsson"$line$$line$Guðmundur Gísli Geirdal tekur undir bókun Sverris Óskarssonar.$line$$line$Ása Richardsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Kópavogsdalurinn er hjarta höfuðborgarlandsins alls. Hann er ekki bara okkar, heldur allra íbúa höfuðborgarsvæðsins, landsmanna allra og getur orðið aðdráttarafl fyrir ferðamenn sem heimsækja Ísland. Verðmæti Kópavogsdals felast ekki í því að brjóta land dalsins, hversu mikið eða lítið það er, undir byggð eða mannvirki. Verðmæti dalsins felast í því að halda dalnum grænum og leyfa aðeins starfsemi og aðstöðu sem allur almenningur getur notið.$line$Ása Richardsdóttir"$line$$line$Sverrir Óskarsson, Karen Halldórsdóttir og Guðmundur Gísli Geirdal tóku undir bókun Ásu Richardsdóttur.$line$$line$Theódóra Þorsteinsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Því hefur verið haldið fram að tillaga um stækkun Tennishallarinnar sér ósamrýmanleg aðalskipulagi Kópavogs og þar með gangi ekki upp. Í því sambandi og til rökstuðnings hefur verið bent á úrskurð úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála nr. 79/2013. Ákvörðun um hvort aðalskipulag og deiliskipulag séu í innbyrðis samræmi er matskennd ákvörðun. Engar lagabreytingar hafa orðið á skipulagslögum sem ætti að breyta fyrri framkvæmd. Aðalskipulag felur í sér stefnu og stefnumið fyrir allt sveitarfélagið og þannig hefur það alltaf verið unnið. Eðli aðalskipulags er að vera gróf áætlun en ekki nákvæm útfærsla með tilliti til staðbundinna aðstæðna. Horfa verður til þess að ákvörðun um ógildingu í úrskurði nr. 79/2013 byggir á orðalagi "að öllu framangreindu virtu" sem segir mér að meta þurfi margar forsendur í þeim úrskurði og er því ekki gott að byggja á honum einum og sér til þess að breyta fyrri framkvæmd skipulagsyfirvalda. Við þurfum mun skýrari úrskurð og/eða helst dóma. $line$Theodóra S. Þorsteinsdóttir"$line$$line$Sverrir Óskarsson lagði fram eftirfarandi$line$"Hvet bæjarstjórn Kópavogs til að leita eftir áliti Skipulagsstofnunar á því hvernig túlka beri landnotkunarflokka.$line$Sverrir Óskarsson"$line$$line$Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með sex atkvæðum gegn fimm. Atkvæði með tillögunni greiddu Margrét Friðriksdóttir, Birkir Jón Jónsson, Ármann Kr. Ólafsson, Theódóra S. Þorsteinsdóttir, Hjördís Ýr Johnson og Ólafur Þór Gunnarsson. Atkvæði gegn tillögunni greiddu Sverrir Óskarsson, Karen Halldórsdóttir, Guðmundur Gísli Geirdal, Ása Richardsdóttir og Kristín Sævarsdóttir.
03
Skipulagsnefnd - 1278. fundur
Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju tillaga að stækkun tennishallarinnar frá Tennisfélagi Kópavogs og Tennishöllinni dags. 8.9.2015. Tillagan var til sýnis á skipulags- og byggingardeild frá 16.11.2015 til 11.1.2016. Þá var tillagan auglýst í Fréttablaðinu 13.11.2015 og í Lögbirtingarblaðinu 16.11.2015. Þá var dreifibréf sent 17.11.2015 í íbúðarhús í nágrenni Tennihallarinnar til að vekja athygli á auglýstri tillögu. Kynningu lauk 11.1.2016. Athugasemdir og ábendingar bárust á kynningartíma. Að auki bárust erindi til bæjaryfirvalda þar sem mælt var með stækkun Tennishallarinnar. Erindi bárust frá eftirtöldum:$line$$line$Helga Óskari Óskarssyni, Hlíðarvegi 64, dags. 5.1.2016; frá Sigurði Erni Magnasyni, Lækjasmára 98, dags. 8.1.2016; frá Friðriki Þór Sigmarssyni, dags. 8.1.2016; frá Önnu Magnúsdóttur, Kópavogstúni 6, dags. 8.1.2016; frá Guðrúnu Benediktsdóttur, Ásmundi Hilmarssyni, Helga Þórissyni og Jóhannesi Birgi Jenssyni, dags. 11.1.2016; frá Guðrúnu Benediktsdóttur, Brekkusmára 2, dags. 11.1.2016; frá Unnsteini Jónssyni, Lindasmára 22, dags. 11.1.2016; frá Valtý Þórissyni og Elísu Guðlaugu Jónsdóttur, Lindasmára 2; Eggert Kistinssyni og Guðlaugu Hinriksdóttur, Lindasmára 42; Sylvíu Ólafsdóttur, Lindasmára 40; Elísu Guðlaugu Jónsdóttur, Lindasmára 42; Krístrúnu Zakaríasdóttur og Friðriki Haraldssyni, Lindasmára 50 dags. 11.1.2016; frá Guðmundi Sigurbergssyni, dags. 11.1.2016. Að auki barst athugasemd frá Gunnari Gylfasyni, Þinghólsbraut 33, dags. 11.1.2016, eftir að fresti til að skila inn athugasemdum lauk; Elísabetu Ólafsdóttur, Aðalþingi 11, dags. 8.1.2016; frá Ágústi Sigurjónssyni, Lautasmára 12, dags. 8.1.2016; frá Rut Steinsen, Þrymsölum 4, dags. 8.1.2016; frá Páli Kristinssyni, Lækjasmára 96, dags. 8.1.2016; frá Björg Ósk Bjarnadóttur, Klukkubergi 41, dags. 10.1.2016; frá Sólbjört Aðalsteinsdóttur, dags. 10.1.2016; frá Sigurði Óskarssyni, Hörðukór 1, dags. 10.1.2016; frá Emil B. Karlssyni, Brekkutúni 11, dags. 10.1.2016; frá Dr. Nínu Margréti Grímsdóttur og Styrkár Hendrikssyni, dags. 10.1.2016; frá Sigurði Norðdahl, dags. 10.1.2016; frá Grími Stein Emilssyni, dags. 10.1.2016; frá Gunnari Þór Finnbjörnssyni, Bakkasmára 21, dags. 10.1.2016; frá Heimi Þór Hermannssyni, Starhólma 12, dags. 10.1.2016; frá Eggerti Þór Þorsteinssyni, Hrauntungu 81, dags. 10.1.2016; frá Guðrúnu Ástu Magnúsdóttur og Joaquín Amesto Nuevo, Hlíðarvegi 18, dags. 10.1.2016; frá Ólafi Sveinssyni, dags. 11.1.2016; frá Sigurði Þorsteinssyni, Bollasmára 8, 11.1.2016; frá Stjórn Tennissambands Íslands, dags. 11.1.2016; frá Ingimar Guðjóni Bjarnasyni, Fífuhvammi 7, 11.1.2016; frá Klettaskóla, dags. 6.1.2016; frá Ernu Sigurðardóttur, Lautasmára 26, dags. 11.1.2016; frá Sigurði Jónssyni, dags. 11.1.2016; frá Helgu Hauksdóttir og Geir Gestssyni, Fífuhvammi 21, dags. 11.1.2016; frá Hildi Sigurðardóttur, Þinghólsbraut 67, dags. 11.1.2016; frá Bjarna Jóhanni Þórðarsyni, Álfatúni 25, dags. 11.1.2016; frá Eyþóri Gunnari Jónssyni, Núpalind 6, dags. 11.1.2016; frá Hótel Smára, Hlíðarsmára 13, dags. 11.1.2016; frá Kolbrúnu Sigurðardóttur og Jóni Þór Guðmundssyni, Straumsölum 5, dags. 9.1.2016; frá Dröfn Sigurðardóttur og Guðmundi Þorsteinssyni, Lindasmára 61, dags. 8.1.2016; frá Guðbrandi Elí Lúðvíkssyni, Þorrasölum 1-3, dags. 11.1.2016; frá Ólafi Helga Jónssyni, dags. 11.1.2016; frá Guðlaugu Hörpu Gunnarsdóttur, dags. 11.1.2016; frá Rögnu Sigurðardóttur, dags. 11.1.2016; frá Ragnari Tómas Árnasyni, dags. 11.1.2016; frá Rúrik Vatnarssyni, dags. 11.1.2016; frá Ernu Guðrúnu Sigurðardóttur, Lautasmára 26, dags. 11.1.2016; frá Helga Magnússyni, Hamraborg 5, dags. 11.1.2016; frá Júlíusi Þór Halldórssyni, dags. 11.1.2016.$line$$line$Að auki barst undirskriftalisti með fyrirsögninni "Við styðjum stækkun Tennishallar" með 507 undirskriftum, mótt. 11.1.2016.$line$$line$Á fundi skipulagsnefndar 18.1.2016 var samþykkt að unnið yrði úr innsendum athugasemdum og málið lagt fyrir 1272. fund skipulagsnefndar til afgreiðslu.$line$$line$Lögð fram tillaga að umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 15.2.2016. Einnig lögð fram tillaga skipulagsstjóra að mögulegri lausn dags. 15.2.2016.
Skipulagsnefnd samþykkir kynnta tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir Dalsmára 13 og ofangreinda umsögn. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$$line$Theódóra Þorsteinsdóttir, Ármann Kr. Ólafsson, Andrés Pétursson, Kristinn Dagur Gissurarson og Júlíus Hafstein voru samþykk tillögunni.$line$$line$Guðmundur G. Geirdal og Ása Richardsdóttir voru andvíg að samþykkja tillöguna.$line$$line$Bókun frá Guðmundi G. Geirdal:$line$"Að byggja 2100 fermetra hús austan við núverandi tennishús tel ég vera í andstöðu alltof margra Kópavogsbúa, sérstaklega þeirra sem nýta sér Kópavogsdalinn til útivistar.$line$Það er mikilvægt nú og í anda aðalskipulags Kópavogs að þegar markvist er unnið að þéttingu byggðar, sérstaklega í nágrenni Kópavogsdals að standa vörð um grænu svæðin okkar, það er reyndar forsenda þess að sátt náist um slíka þéttingu sem nú er að hefjast.$line$Þess vegna tel ég að stækkun tennishússinns færi betur annarstaðar en hér er lagt til, og að ekkert verði byggt í Kópavogsdal nema kannski það sem opið væri almenningi án endurgjalds".$line$$line$Bókun frá Ásu Richardsdóttur:$line$"Ása Richardsdóttir tekur undir bókun Guðmundar Geirdals og bókar að auki:$line$Undirrituð leggst gegn stækkun Tennishallar með þessum hætti. Fulltrúar í skipulagsnefnd hafa marg ítrekað þann vilja að Kópavogsdalur verði deiliskipulagður að nýju, áður en frekari uppbygging er leyfð þar."$line$$line$Bókun frá Theódóru Þorsteinsdóttur, Ármanni Kr. Ólafssyni, Andrési Péturssyni, Kristni Degi Gissurarsyni og Júlíusi Hafstein:$line$"Það er búið að auglýsa stækkun tennishallarinnar tvisvar. Tiltölulega fáar athugasemdir hafa borist gegn tillögunni en mun fleiri hafa sent inn yfirlýsingu um stuðning við tillöguna. Þarna er einungis verið að strækka lóðina og stækka húsið út á núverandi bílastæði og sé horft á dalinn í heild sinni þá er þetta vart merkjanleg stækkun en mun lyfta grettistaki fyrir tennisíþróttina".$line$$line$Bókun frá Arnþóri Sigurðsyni:$line$"Undirritaður hefur ekkert á móti byggingu tennishúss eða staðsetningu þess. Hinsvegar væri eðlilegt að skipuleggja íþróttasvæði í heild sinni áður en tillaga af þessu tagi er samþykkt". $line$$line$Bókun frá Guðmundi Geirdal og Ásu Richarsdóttur:$line$"Undirrituð vilja að það komi skýrt fram að við viljum veg tennisíþróttarinnar sem mestan. Ágreiningurinn snýst um byggingu húss í Kópavogsdal".
04
Skipulagsnefnd - 1272. fundur
Lögð fram að nýju tillaga að stækkun tennishallarinnar frá Tennisfélagi Kópavogs og Tennishöllinni dags. 8.9.2015. Á fundi skipulagsnefndar 18.1.2016 var samþykkt að unnið yrði úr innsendum athugasemdum og málið lagt fyrir 1272. fund skipulagsnefndar til afgreiðslu.$line$$line$Lögð fram drög að umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 15.2.2016. Einnig lögð fram tillaga skipulagsstjóra að mögulegri lausn dags. 15.2.2016.
Hlé var gert á fundi kl. 18:35$line$$line$Fundi var framhaldið kl. 18:48$line$$line$Kynnt og frestað.
05
Skipulagsnefnd - 1271. fundur
Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju tillaga að stækkun tennishallarinnar frá Tennisfélagi Kópavogs og Tennishöllinni dags. 8.9.2015. Tillagan var til sýnis á skipulags- og byggingardeild frá 16.11.2015 til 11.1.2016. Þá var tillagan auglýst í Fréttablaðinu 13.11.2015 og í Lögbirtingarblaðinu 16.11.2015. Þá var dreifibréf sent 17.11.2015 í íbúðarhús í nágrenni Tennihallarinnar til að vekja athygli á auglýstri tillögu. Kynningu lauk 11.1.2016. Athugasemdir og ábendingar bárust á kynningartíma. Að auki bárust erindi til bæjaryfirvalda þar sem mælt var með stækkun Tennishallarinnar. Erindi bárust frá eftirtöldum:$line$$line$Helga Óskari Óskarssyni, Hlíðarvegi 64, dags. 5.1.2016; frá Sigurði Erni Magnasyni, Lækjasmára 98, dags. 8.1.2016; frá Friðriki Þór Sigmarssyni, dags. 8.1.2016; frá Önnu Magnúsdóttur, Kópavogstúni 6, dags. 8.1.2016; frá Guðrúnu Benediktsdóttur, Ásmundi Hilmarssyni, Helga Þórissyni og Jóhannesi Birgi Jenssyni, dags. 11.1.2016; frá Guðrúnu Benediktsdóttur, Brekkusmára 2, dags. 11.1.2016; frá Unnsteini Jónssyni, Lindasmára 22, dags. 11.1.2016; frá Valtý Þórissyni og Elísu Guðlaugu Jónsdóttur, Lindasmára 2; Eggert Kistinssyni og Guðlaugu Hinriksdóttur, Lindasmára 42; Sylvíu Ólafsdóttur, Lindasmára 40; Elísu Guðlaugu Jónsdóttur, Lindasmára 42; Krístrúnu Zakaríasdóttur og Friðriki Haraldssyni, Lindasmára 50 dags. 11.1.2016; frá Guðmundi Sigurbergssyni, dags. 11.1.2016. Að auki barst athugasemd frá Gunnari Gylfasyni, Þinghólsbraut 33, dags. 11.1.2016, eftir að fresti til að skila inn athugasemdum lauk; Elísabetu Ólafsdóttur, Aðalþingi 11, dags. 8.1.2016; frá Ágústi Sigurjónssyni, Lautasmára 12, dags. 8.1.2016; frá Rut Steinsen, Þrymsölum 4, dags. 8.1.2016; frá Páli Kristinssyni, Lækjasmára 96, dags. 8.1.2016; frá Björg Ósk Bjarnadóttur, Klukkubergi 41, dags. 10.1.2016; frá Sólbjört Aðalsteinsdóttur, dags. 10.1.2016; frá Sigurði Óskarssyni, Hörðukór 1, dags. 10.1.2016; frá Emil B. Karlssyni, Brekkutúni 11, dags. 10.1.2016; frá Dr. Nínu Margréti Grímsdóttur og Styrkár Hendrikssyni, dags. 10.1.2016; frá Sigurði Norðdahl, dags. 10.1.2016; frá Grími Stein Emilssyni, dags. 10.1.2016; frá Gunnari Þór Finnbjörnssyni, Bakkasmára 21, dags. 10.1.2016; frá Heimi Þór Hermannssyni, Starhólma 12, dags. 10.1.2016; frá Eggerti Þór Þorsteinssyni, Hrauntungu 81, dags. 10.1.2016; frá Guðrúnu Ástu Magnúsdóttur og Joaquín Amesto Nuevo, Hlíðarvegi 18, dags. 10.1.2016; frá Ólafi Sveinssyni, dags. 11.1.2016; frá Sigurði Þorsteinssyni, Bollasmára 8, 11.1.2016; frá Stjórn Tennissambands Íslands, dags. 11.1.2016; frá Ingimar Guðjóni Bjarnasyni, Fífuhvammi 7, 11.1.2016; frá Klettaskóla, dags. 6.1.2016; frá Ernu Sigurðardóttur, Lautasmára 26, dags. 11.1.2016; frá Sigurði Jónssyni, dags. 11.1.2016; frá Helgu Hauksdóttir og Geir Gestssyni, Fífuhvammi 21, dags. 11.1.2016; frá Hildi Sigurðardóttur, Þinghólsbraut 67, dags. 11.1.2016; frá Bjarna Jóhanni Þórðarsyni, Álfatúni 25, dags. 11.1.2016; frá Eyþóri Gunnari Jónssyni, Núpalind 6, dags. 11.1.2016; frá Hótel Smára, Hlíðarsmára 13, dags. 11.1.2016; frá Kolbrúnu Sigurðardóttur og Jóni Þór Guðmundssyni, Straumsölum 5, dags. 9.1.2016; frá Dröfn Sigurðardóttur og Guðmundi Þorsteinssyni, Lindasmára 61, dags. 8.1.2016; frá Guðbrandi Elí Lúðvíkssyni, Þorrasölum 1-3, dags. 11.1.2016; frá Ólafi Helga Jónssyni, dags. 11.1.2016; frá Guðlaugu Hörpu Gunnarsdóttur, dags. 11.1.2016; frá Rögnu Sigurðardóttur, dags. 11.1.2016; frá Ragnari Tómas Árnasyni, dags. 11.1.2016; frá Rúrik Vatnarssyni, dags. 11.1.2016; frá Ernu Guðrúnu Sigurðardóttur, Lautasmára 26, dags. 11.1.2016; frá Helga Magnússyni, Hamraborg 5, dags. 11.1.2016; frá Júlíusi Þór Halldórssyni, dags. 11.1.2016.$line$$line$Að auki barst undirskriftalisti með fyrirsögninni "Við styðjum stækkun Tennishallar" með 507 undirskriftum, mótt. 11.1.2016.
Hlé var gert á fundi kl. 18:25$line$$line$Fundi var framhaldið kl. 18:38$line$$line$Frestað.$line$Sverrir Óskarsson, Margrét Júlía Rafnsdóttir og Ása Richardsdóttir voru fylgjandi frestun. $line$Kristinn Dagur Gissurarson var á móti frestun. $line$Jón Finnbogason og Anna María Bjarnadóttir sátu hjá.$line$$line$Kristinn Dagur Gissurarsona, fulltrúi Framsóknarflokksins telur að eðlileg málsmeðferð hefði verið að fresta málinu og vísa athugasemdum til úrvinnslu skipulags- og byggingardeildar.$line$Anna María Bjarnadóttir tók undir bókun Kristins Dags Gissurarsonar.$line$$line$Tillaga að breyttu deiliskipulagi að Dalsmára 13 hefur verið kynnt í samræmi við ákvörðun bæjarstjórnar Kópavogs. Skipulags- og byggingardeild hefur móttekið erindi með athugasemdum og ábendingum frá fjölda bæjarbúa vegna tillögunnar. Undirrituð telja rétt að skipulags- og byggingardeild vinni úr innsendum erindum og leggi fyrir 1272. fund skipulagsnefndar málið til afgreiðslu.$line$Jón Finnbogason, Anna María Bjarnadóttir, Sigríður Kristjánsdóttir og Kristinn Dagur Gissurarson.$line$$line$Þrír nefndarmenn óskuðu eftir að málinu verði frestað, m.a. vegna þess að gögn voru ekki aðgengileg fundarmönnum. Það er eðlileg stjórnsýsla að verða við því.$line$Ása Richardsdóttir, Margrét Júlía Rafnsdóttir, Sverrir Óskarsson.
06
Bæjarstjórn - 1124. fundur
Frá skipulagsstjóra, dags. 6. október, lögð fram tillaga frá Tennisfélagi Kópavogs og Tennishöllinni, dags. 8.9.2015, vegna stækkunar Tennishallarinnar þar sem óskað er eftir að framlagðar tillögur að nýju útliti og stækkunar Tennishallarinnar fái afgreiðslu hjá skipulagsnefnd, sjá mál nr. 1509276. Þá lagður fram uppdráttur mótt. 28.9.2015 sem sýnir fyrirhugaða stækkun Tennishallarinnar. Við austurhlið núverandi tennishallar kemur 2100 m2 viðbygging, 44,5 metrar x 49 metrar að stærð, hæð viðbyggingar verður 10 metrar. Tengibygging úr gleri verður á suðurhlið viðbyggingar sbr. uppdrætti mótt. 28.9.2015. Skipulagsnefnd hafnaði tillögunni og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði fram eftirfarandi tillögu um afgreiðslu:$line$"Lagt er til að skipulagsstjóra verði falið að auglýsa deiliskipulagstillöguna í samræmi við skipulagslög.$line$Ármann Kr. Ólafsson"$line$$line$Bæjarstjórn samþykkir tillögu Ármanns Kr. Ólafssonar með níu samhljóða atkvæðum. Ása Richardsdóttir og Sverrir Óskarsson greiddu ekki atkvæði.$line$$line$Sverrir Óskarsson og Ása Richardsdóttir lögðu fram eftirfarandi bókun:$line$"Harmað er að ákveðnir bæjarfulltrúar ætli að knýja fram stækkun Tennishallarinnar inn í miðjan Kópavogsdal. Áður fyrr var Tennishöllin í Sporthúsinu en þeir seldu það hús frá sér og fengu að byggja sér nýja Tennishöll fyrir aftan Sporthúsið. Nú er tillaga um nýja byggingu til viðbótar. Vel hefur farið um starfsemi Tennishallarinnar hingað til og bæði Kópavogsbúar og íbúar annarra sveitarfélaga hafa fengið þar góða þjónustu, enda er þetta besta tennisaðstaða landsins og nýverið voru Smáþjóðaleikarnir haldnir í húsinu. Undirritaður er á móti því að Tennishöllin fái að stækka um 2.100 fm inn í miðjan Kópavogsdal, inn í eina fallegustu perlu Kópavogsbæjar. Mikil þétting er framundan í bænum og við verðum að standa vörð um grænu svæði bæjarins og leyfa náttúrunni að njóta sín. Ef hver skipulagsnefnd ákveður eina svona byggingu í miðjan dalinn er ljóst hvert stefnir með gæði náttúrunnar í Kópavogi.$line$Sverrir Óskarsson, Ása Richardsdóttir"
07
Bæjarráð - 2791. fundur
Frá skipulagsstjóra, dags. 6. október, lögð fram tillaga frá aTennisfélagi Kópavogs og Tennishöllinni, dags. 8.9.2015, vegna stækkunar Tennishallarinnar þar sem óskað er eftir að framlagðar tillögur að nýju útliti og stækkunar Tennishallarinnar fái afgreiðslu hjá skipulagsnefnd, sjá mál nr. 1509276. Þá lagður fram uppdráttur mótt. 28.9.2015 sem sýnir fyrirhugaða stækkun Tennishallarinnar. Við austurhlið núverandi tennishallar kemur 2100 m2 viðbygging, 44,5 metrar x 49 metrar að stærð, hæð viðbyggingar verður 10 metrar. Tengibygging úr gleri verður á suðurhlið viðbyggingar sbr. uppdrætti mótt. 28.9.2015. Skipulagsnefnd hafnaði tillögunni og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
08
Skipulagsnefnd - 1266. fundur
Frá bæjarráði:$line$Lagt fram bréf frá Tennisfélagi Kópavogs og Tennishöllinni, dags. 8.9.2015, vegna stækkunar Tennishallarinnar þar sem óskað er eftir að framlagðar tillögur að nýju útliti og stækkunar Tennishallarinnar fái afgreiðslu hjá skipulagsnefnd, sjá mál nr. 1509276.$line$$line$Þá lagður fram uppdráttur mótt. 28.9.2015 sem sýnir fyrirhugaða stækkun Tennishallarinnar. Við austurhlið núverandi tennishallar kemur 2100 m2 viðbygging, 44,5 metrar x 49 metrar að stærð, hæð viðbyggingar verður 10 metrar. Tengibygging úr gleri verður á suðurhlið viðbyggingar sbr. uppdrætti mótt. 28.9.2015.
Hafnað. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$$line$Kristinn Dagur Gissurarson og Sigríður Kristjánsdóttir sátu hjá við afgreiðslu málsins.$line$$line$Ég legg til að hafin verði vinna við að deiliskipuleggja vesturhluta Kópavogsdals.$line$Margrét Júlía Rafnsdóttir. $line$Helga Elínborg Jónsdóttir, Sverrir Óskarsson, Sigríður Kristjánsdóttir og Guðmundur Geirdal tóku undir bókun Margrétar.
09
Skipulagsnefnd - 1250. fundur
Frá bæjarráði:$line$Lagðar fram umsagnir frá sviðsstjóra menntasviðs dags. 11.11.2014, Markaðsstofu Kópavogs dags. 11.11.2014 og sviðsstjóra umhverfissviðs dags. 25.10.2014 sem óskað var eftir í bæjarráði 23. október sl. Á fundi bæjarráðs 27.11.2014 var málinu vísað til umsagnar skipulagsnefndar.
"Afstaða skipulagsnefndar til viðbyggingar við Tennishöllina er óbreytt frá fundi nefndarinnar 20. október 2014." $line$Sverrir Óskarsson, Helga Jónsdóttir, Margrét Júlía Rafnsdóttir og Guðmundur Geirdal.$line$$line$Sigríður Kristjánsdóttir og Anna María Bjarnadóttir: Eru áfram hlynntar stækkun til austurs.$line$$line$Sigurbjörn T. Vilhjálmsson sat hjá.$line$$line$"Ég þakka menntasviði og Markaðsstofu Kópavogs fyrir þeirra innlegg í málið. Sem gerir þó ekki annað en að staðfesta það sem allir voru sammála um þ.e. að stækkun tennishallarinnar muni efla tennisíþróttina og bæta aðstöðu íþróttarinnar. Um þetta hefur ekki verið neinn ágreiningur, ágreiningurinn hefur eingöngu verið um staðsetningu viðbyggingarinnar og það að senda skipulagsnefnd málið aftur er að mínu mati tóm tímasóun, þar sem nefndin hefur þegar skilað áliti sínu."$line$Guðmundur Geirdal. $line$Sverrir Óskarsson, Helga Jónsdóttir og Sigurbjörn T. Vilhjálmsson taka undir bókun Guðmundar.$line$$line$"Bókun ítrekuð frá fundi skipulagsnefndar 20. október 2014; Áður en frekari bygging mannvirkja verður leyfð í Kópavogsdal er mikilvægt að bæjaryfirvöld vinni heildarsýn um framtíðarnotkun dalsins."$line$Margrét Júlía Rafnsdóttir og Helga Jónsdóttir.$line$$line$Sverrir Óskarsson, Sigríður Kristjánsdóttir, Anna María Bjarnadóttir, Helga Jónsdóttir og Sigurbjörn T. Vilhjálmsson fela formanni/starfsmönnum að ræða við hlutaðeigandi aðila um möguleika þess að stækkun fari til vesturs.$line$$line$Guðmundur Geirdal og Margrét Júlía Rafnsdóttir sitja hjá.
10
Bæjarráð - 2752. fundur
Frá sviðsstjóra menntasviðs, Markaðsstofu Kópavogs og sviðsstjóra umhverfissviðs, umsagnir sem óskað var eftir í bæjarráði þann 23. október sl. varðandi fyrirhugaða stækkun Tennishallarinnar.
Bæjarráð vísar málinu til skipulagsnefndar til umsagnar, ásamt framlögðum umsögnum.
11
Bæjarráð - 2747. fundur
Lagt fram að nýju erindi Tennisfélags Kópavogs og Tennishallarinnar er varðar stækkun tennishallarinnar til austurs. Viðbygging verður 36,7 x 39 metrar að stærð eða 1432m2. Hæsti punktur hennar verður 10m en vegghæð 6m. Á fundi skipulagsnefndar 28.7.2014 var málinu frestað og óskað eftir frekari tillögum frá umsóknaraðilum.$line$$line$Lagt fram bréf frá Þresti Jóni Sigurðssyni f.h. Sporthússins dags. 13.8.2014.$line$$line$Lagt fram ásamt uppfærðum teikningum að útliti hússins og fyrirkomulagi bílastæða dags. 10.9.2014.$line$$line$Lögð fram tillaga frá Sigríði Kristjánsdóttur um að deiliskipulagstillagan verði samþykkt: Kristinn Dagur Gissurarson, Anna María Bjarnadóttir og Sigríður Kristjánsdóttir samþykkja tillöguna. Sverrir Óskarsson, Margrét Júlía Rafnsdóttir, Ása Richardsdóttir og Guðmundur Geirdal hafna tillögunni.$line$$line$Lögð fram tillaga frá Sverri Óskarssyni um að deiliskipulagstillögunni verði hafnað: Sverrir Óskarsson, Margrét Júlía Rafnsdóttir, Ása Richardsdóttir og Guðmundur Geirdal samþykkja að deiliskipulagstillögunni verði hafnað. Kristinn Dagur Gissurarson, Anna María Bjarnadóttir og Sigríður Kristjánsdóttir eru á móti.$line$$line$"Áður en frekari bygging mannvirkja verður leyfð í Kópavogsdal er mikilvægt að bæjaryfirvöld vinni heildarsýn um framtíðarnotkun dalsins."$line$Ása Richardsdóttir og Margrét Júlía Rafnsdóttir.$line$$line$Hafnað. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$
Bæjarráð frestar afreiðslu og vísar málinu til sviðsstjóra menntasviðs og framkvæmdastjóra markaðsstofu Kópavogs til umsagnar. Þá óskar bæjarráð eftir umsögn sviðsstjóra umhverfissviðs um kostnað vegna hugsanlegra framkvæmda Kópavogsbæjar.
12
Skipulagsnefnd - 1247. fundur
Lagt fram að nýju erindi Tennisfélags Kópavogs og Tennishallarinnar er varðar stækkun tennishallarinnar til austurs. Viðbygging verður 36,7 x 39 metrar að stærð eða 1432m2. Hæsti punktur hennar verður 10m en vegghæð 6m. Á fundi skipulagsnefndar 28.7.2014 var málinu frestað og óskað eftir frekari tillögum frá umsóknaraðilum.$line$$line$Lagt fram bréf frá Þresti Jóni Sigurðssyni f.h. Sporthússins dags. 13.8.2014.$line$$line$Lagt fram ásamt uppfærðum teikningum að útliti hússins og fyrirkomulagi bílastæða dags. 10.9.2014.
Lögð fram tillaga frá Sigríði Kristjánsdóttur um að deiliskipulagstillagan verði samþykkt: Kristinn Dagur Gissurarson, Anna María Bjarnadóttir og Sigríður Kristjánsdóttir samþykkja tillöguna. Sverrir Óskarsson, Margrét Júlía Rafnsdóttir, Ása Richardsdóttir og Guðmundur Geirdal hafna tillögunni.$line$$line$Lögð fram tillaga frá Sverri Óskarssyni um að deiliskipulagstillögunni verði hafnað: Sverrir Óskarsson, Margrét Júlía Rafnsdóttir, Ása Richardsdóttir og Guðmundur Geirdal samþykkja að deiliskipulagstillögunni verði hafnað. Kristinn Dagur Gissurarson, Anna María Bjarnadóttir og Sigríður Kristjánsdóttir eru á móti.$line$$line$"Áður en frekari bygging mannvirkja verður leyfð í Kópavogsdal er mikilvægt að bæjaryfirvöld vinni heildarsýn um framtíðarnotkun dalsins."$line$Ása Richardsdóttir og Margrét Júlía Rafnsdóttir.$line$$line$Hafnað. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
13
Skipulagsnefnd - 1242. fundur
Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju erindi Tennisfélags Kópavogs og Tennishallarinnar að stækkun tennishallarinnar til austurs. Viðbygging verður 36,7 x 39 metrar að stærð eða 1432m2. Hæsti punktur hennar verður 10m en vegghæð 6m. Einnig lögð fram umsögn sviðsstjóra menntasviðs og sviðsstjóra umhverfissviðs dags. 3.2.2014. Í umsögn framangreindra kemur m.a. fram að stækkun Tennishallarinnar muni efla félagið og treysta rekstrargrundvöll þess og að komi til stækkunar þá er lagt til að yfirtöku- og gatnagerðargjöld verði skv. gjaldskrá og þau gjöld komi til með að duga til þeirra framkvæmda sem nauðsynlegar verða vegna stækkun Tennishallarinnar. Á fundi skipulagsnefndar 18.3.2014 samþykkti skipulagsnefnd með vísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Staðfest í bæjarstjórn 25.3.2014. Tillagan var auglýst í Fréttablaðinu 13.5.2014 og í Lögbirtingarblaðinu 14.5.2014. Einnig var tillagan til sýnis á skrifstofu skipulags- og byggingardeildar og á heimasíðu bæjarins meðan á kynningu stóð. Að auki var sent dreifibréf í næsta nágrenni til að vekja athygli á tillögunni. Athugasemdir og ábendingar bárust frá Sylvíu Hlín Matthíasdóttur og Gísla Rúnari Gíslasyni, Lindasmára 34 sbr. erindi dags. 25. júní 2014; Sporthúsinu, Dalsmára 9-11 sbr. erindi dags. 29. júní 2014; Hólmfríði Erlingsdóttur, Fífuhvammi 43 sbr. erindi dags. 30. maí 2014. $line$$line$Þá lögð fram umsögn skipulags- og byggingardeildar um framkomnar athugasemdir og ábendingar. Er umsögnin dags. 21. júlí 2014. Enn fremur lagt fram minnisblað framkvæmdastjóra Tennishallarinnar dags. 24. júlí 2014.
Frestað. Óskað eftir frekari tillögum frá umsóknaraðilum. Skipulagsnefnd óskar einnig eftir því að skipulags- og byggingardeild taki saman yfirlit yfir heildarskipulag Kópavogsdals.$line$$line$Jónas Páll Björnsson, framkvæmdastjóri Tennishallarinnar og Helgi Þór Jónasson, formaður Tennissambands Íslands, sátu fundinn undir þessum lið.
14
Skipulagsnefnd - 1241. fundur
Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju erindi Tennisfélags Kópavogs og Tennishallarinnar að stækkun tennishallarinnar til austurs. Viðbygging verður 36,7 x 39 metrar að stærð eða 1432m2. Hæsti punktur hennar verður 10m en vegghæð 6m. Einnig lögð fram umsögn sviðsstjóra menntasviðs og sviðsstjóra umhverfissviðs dags. 3.2.2014. Á fundi skipulagsnefndar 18.3.2014 samþykkti skipulagsnefnd með vísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Staðfest í bæjarstjórn 25.3.2014. Tillagan var auglýst í Fréttablaðinu 13.5.2014 og í Lögbirtingarblaðinu 14.5.2014. Einnig var tillagan til sýnis á skrifstofu skipulags- og byggingardeildar og á heimasíðu bæjarins meðan á kynningu stóð. Að auki var sent dreifibréf í hverfið til að vekja athygli á tillögunni.
Frestað.
15
Bæjarstjórn - 1093. fundur
Lagt fram að nýju erindi Tennisfélags Kópavogs og Tennishallarinnar að stækkun tennishallarinnar til austurs. Viðbygging verður 36,7 x 39 metrar að stærð eða 1432m2. Hæsti punktur hennar verður 10m en vegghæð 6m. Einnig lögð fram umsögn sviðsstjóra umverfissviðs dags. 3.2.2014.$line$Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Samþykkt með fjórum atkvæðum gegn þremur.$line$Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$Bæjarráð vísaði málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir erindið með sjö atkvæðum. Fjórir bæjarfulltrúar greiddu ekki atkvæði.
16
Bæjarráð - 2724. fundur
Lagt fram að nýju erindi Tennisfélags Kópavogs og Tennishallarinnar að stækkun tennishallarinnar til austurs. Viðbygging verður 36,7 x 39 metrar að stærð eða 1432m2. Hæsti punktur hennar verður 10m en vegghæð 6m. Einnig lögð fram umsögn sviðsstjóra umverfissviðs dags. 3.2.2014.$line$Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Samþykkt með fjórum atkvæðum gegn þremur.$line$Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$$line$
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
17
Skipulagsnefnd - 1237. fundur
Lagt fram að nýju erindi Tennisfélags Kópavogs og Tennishallarinnar að stækkun tennishallarinnar til austurs. Viðbygging verður 36,7 x 39 metrar að stærð eða 1432m2. Hæsti punktur hennar verður 10m en vegghæð 6m. Einnig lögð fram umsögn sviðsstjóra umverfissviðs dags. 3.2.2014
Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.Samþykkt með fjórum atkvæðum gegn þremur.
18
Bæjarráð - 2718. fundur
Frá sviðsstjórum umhverfissviðs og menntasviðs, dags. 3. febrúar, umsögn um stækkun Tennishallarinnar.
Lagt fram.
19
Skipulagsnefnd - 1235. fundur
Lagt fram erindi Tennisfélags Kópavogs og Tennishallarinnar dags. 5.12.2013 þar sem óskað er eftir að stækka Tennishöllina við Dalsmára 13 til austurs sbr. meðfylgjandi uppdrætti.
Frestað.
20
Skipulagsnefnd - 1233. fundur
Lagt fram erindi Tennisfélags Kópavogs og Tennishallarinnar dags. 5.12.2013 þar sem óskað er eftir að stækka Tennishöllina við Dalsmára 13 til vesturs sbr. meðfylgjandi uppdrætti.
Lagt fram og kynnt.
21
Bæjarráð - 2709. fundur
Frá Tennisfélagi Kópavogs, dags. 15. nóvember óskað eftir að stækka lóðina að Dalsmára 13.
Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra umhverfissviðs og sviðsstjóra menntasviðs til umsagnar.
22
Bæjarráð - 2694. fundur
Frá Tennisfélaginu ehf. og Tennisfélagi Kópavogs, dags. 28. júní, tillaga að stækkun Tennishallarinnar að Dalsmára 13 ásamt fjárhagsáætlun fyrir verkefnið. Óskað er heimildar til þeirrar stækkunar og einnig að gerður verði nýr rekstrarsamningur með tilliti til hækkunar á fasteignagjöldum í tengslum við fyrirhugaða stækkun.
Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra menntasviðs og sviðsstjóra umhverfissviðs til umsagnar.