Boðaþing 1-3. Breytt deiliskipulag.
Málsnúmer: 1307353
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1085. fundur
Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju tillaga Ragnars Auðunns Birgissonar, arkitekts, f.h. Húsvirki. Skipulagsnefnd samþykkti framlagða breytingartillögu.$line$Bæjarráð samþykkti afgreiðslu skipulagsnefndar og vísaði tillögunni til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
<P>Bæjarstjórn samþykkir framlagða breytingartillögu með 11 atkvæðum.</P>
02
Bæjarráð - 2695. fundur
Skipulagsnefnd telur umrædda breytingu ekki hafa grenndaráhrif og samþykkir hana með tilvísan í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir, með hjásetu eins fulltrúa, að fela skipulagsstjóra að grenndarkynna tillöguna vísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
03
Skipulagsnefnd - 1228. fundur
Lögð fram tillaga Ragnar Auðunns Birgissonar, arkitekts, f.h. Húsvirki. Sótt er um að að reisa 5 hæða hús með inndreginni þakhæð. Byggingarreitur lengist um 3m á lengdina og hliðrast til um 60cm til vesturs og 1,4m til suðurs. Á suðurhlið er hluti þakhæðar ekki dreginn inn um 2m eins og skilmálar gera ráð fyrir. sbr. uppdráttum í mkv. 1:200 dags. 31.5.2013 og 19.7.2013.
Skipulagsnefnd telur umrædda breytingu ekki hafa grenndaráhrif og samþykkir hana með tilvísan í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.