Hlíðasmári 13, Hótel Smári. Beiðni um umsögn vegna umsóknar um nýtt rekstrarleyfi
Málsnúmer: 1307404
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2705. fundur
Frá bæjarlögmanni, dags. 21. október, lagt fram erindi sýslumannsins í Kópavogi, dags. 19. júlí, þar sem óskað er eftir umsögn Kópavogsbæjar um umsókn Smárahótels ehf., kt. 590397-2029, um nýtt rekstrarleyfi til að mega reka hótel í flokki V, að Hlíðasmára 13, 201 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 23. gr. rgl. nr. 585/2007.$line$Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfestir sveitarstjórn, sem umsagnaraðili, að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um. $line$Staðsetning er í samræmi við gildandi skipulag. Afgreiðslutími er umfram það sem fram kemur í ákvæði 2. mgr. 25. gr. reglugerðar nr. 1127/2007 um lögreglusamþykktir en leyfisbeiðandi óskar þess að opnunartími áfengisveitinga hótelsins verði til 01:00 virka daga og 03:00 aðfararnótt laugardags, sunnudags, og almennra frídaga. Sveitarstjórn hefur heimild skv. 2. mgr. 25. gr. reglugerðar nr. 1127/2007 til þess að samþykkja þessa beiðni.
Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti og staðfestir að staðsetning sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um og heimilar umbeðinn afgreiðslutíma.