Hamraborg 1-3, Bambay Bazaar. Beiðni um umsögn vegna umsóknar um nýtt rekstrarleyfi
Málsnúmer: 1307429
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2695. fundur
Frá bæjarlögmanni, dags. 22. júlí, lagt fram bréf sýslumannsins í Kópavogi þar sem óskað er eftir umsögn Kópavogsbæjar um umsókn Bambay Bazaar, kt. 510613-0310, um nýtt rekstrarleyfi til að mega reka veitingahús, veisluþjónustu og veitingaverslun og kaffihús í flokki II, á staðnum Bombay Bazaar, að Hamraborg 1-3, 200 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 23. gr. rgl. nr. 585/2007. Vill umsækjandi hafa opið til kl. 01:00 aðfararnótt laugardags, sunnudags og almennra frídaga en í lögreglusamþykkt er heimilaður opnunartími til kl. 23:00. Sveitarstjórn getur þó veitt heimild til lengri opnunartíma.
<SPAN style="FONT-FAMILY: " mso-bidi-font-family: ?Times New Roman?; mso-fareast-language: mso-fareast-font-family: FONT-SIZE: Calibri?,?sans-serif?; AR-SA? mso-bidi-language: EN-US; IS; mso-ansi-language: 11pt;>Staðsetning er í samræmi við gildandi skipulag en afgreiðslutími er umfram það sem kemur fram í ákvæði 2. mgr. 25. gr. reglugerðar nr. 1127/2007 um lögreglusamþykktir. Bæjarráð samþykkir að heimila opnunartíma í samræmi við umsókn umsækjanda</SPAN>