Til baka í fundargerðir
Kópavogsgerði 1, 3, 5 og 7. Breytt aðkoma/hliðrun byggingarreits.
Málsnúmer: 1307468
Ferill máls
01
Skipulagsnefnd - 1228. fundur
Lögð fram tillaga skipulags- og byggingardeildar um breytta aðkomu við Kópavogstún 1, 3, 5 og 7. Í breytingunni felst að aðkeyrsla á vesturenda Kópavogsgerði 1-3 fellur út. Einnig verður rampur ofan í bílakjallara á austurhlið Kópavogsgerði 5-7 felldur út úr skipulagi. Í stað þeirra verður sameiginleg aðkoma milli lóðanna tveggja. Byggingarreitur húsanna hliðrast lítillega til suðurs til að pláss verði fyrir gangstétt milli bygginga og bílastæða.
Lagt fram og kynnt.