Fyrirspurn um námsleyfisumsókn sviðsstjóra frá Guðríði Arnardóttur
Málsnúmer: 1307591
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2698. fundur
<FONT face=Calibri>"Á fundi bæjarráðs <SPAN></SPAN>8. ágúst óskaði fyrrverandi bæjarstjóri Kópavogs eftir launuðu námsleyfi í sex mánuði.<SPAN> </SPAN>Umræddur starfsmaður tók við stöðu verkefnastjóra hjá bænum í mars s.l. eftir rúmlega árs leyfi frá störfum.<SPAN> </SPAN>Erindinu var vísað til bæjarstjóra til umsagnar.<SPAN> </SPAN>Þar sem ætla mætti að mánuður væri ríflegur tími fyrir bæjarstjóra að vinna slíka umsögn er óskað svara við því hvers vegna bæjarstjóri hefur ekki sinnt þessu verkefni sem bæjarráð fól honum."</FONT><FONT face=Calibri></FONT><FONT face=Calibri>Ármann Kr. Ólafsson bókar: "Umsögnin mun verða til þannig að hægt verði að taka tillit til hennar, eins og annarra óska um námsleyfi, við gerð fjárhagsáætlunar."</FONT>
02
Bæjarráð - 2696. fundur
Frá sviðsstjóra, dags. 31. júlí, umsókn um 6 mánaða launað námsleyfi á vorönn 2014.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjóra og starfsmannastjóra til umsagnar.