Lausir gámar. Yfirlit um stöðu.
Málsnúmer: 1308061
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2730. fundur
Á fundi bæjarráðs 27. mars 2014 var samþykkt að óska eftir því að umhverfissvið gerði tillögu að reglum og gjaldskrá vegna stöðuleyfis gáma. Byggingarfulltrúi hefur gert minnisblað dags. 30. apríl 2014, þar sem fram kemur að í mannvirkjalögum nr. 160/2010 er ekki að finna ákvæði sem heimilar að settar séu reglur um stöðu gáma á lóðum. Vísað er til þess að heimild til stöðu gáma á lóðum verði að ákveða í aðal- deili- eða hverfaskipulagi. Í nýsamþykktu aðalskipulagi Kópavogs er ekki ákvæði um gáma. Framkvæmdaráð samþykkir að mæla með við bæjarráð að bæjarlögmanni verði falið að skoða málið frekar með greinargerð til bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarlögmanni að skoða málið frekar með greinargerð til bæjarráðs.
02
Framkvæmdaráð - 63. fundur
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs
Á fundi bæjarráðs 27. mars 2014 var samþykkt að óska eftir því að umhverfissvið gerði tillögu að reglum og gjaldskrá vegna stöðuleyfis gáma. Byggingarfulltrúi hefur gert minnisblað dags. 30. apríl 2014, þar sem fram kemur að í mannvirkjalögum nr. 160/2010 er ekki að finna ákvæði sem heimilar að settar séu reglur um stöðu gáma á lóðum. Vísað er til þess að heimild til stöðu gáma á lóðum verði að ákveða í aðal- deili- eða hverfaskipulagi. Í nýsamþykktu aðalskipulagi Kópavogs er ekki ákvæði um gáma. Framkvæmdaráð samþykkir að mæla með við bæjarráð að bæjarlögmanni verði falið að skoða málið frekar með greinargerð til bæjarráðs.
03
Bæjarráð - 2725. fundur
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 25. mars, svar við fyrirspurn um fjölda og staðsetningu gáma á lóðum.
Bæjarráð vísar erindinu til umhverfissviðs og óskar eftir tillögu að reglum og gjaldskrá vegna stöðuleyfis gáma.
04
Bæjarráð - 2724. fundur
Ólafur Þór Gunnarsson lagði fram eftirfarandi fyrirspurn:<EM>"Óska eftir upplýsingum um stöðu mála varðandi stöðu gáma á lóðum, sbr. bókun í bæjarráði 22. ágúst 2013.</EM><EM>Ólafur Þór Gunnarsson"</EM>
05
Bæjarráð - 2697. fundur
Minnisblað byggingarfulltrúa við bókun bæjarráðs frá 8. ágúst sl. varðandi reglur um gáma á lóðum og yfirlit yfir stöðu mála á lóðum í bænum.
Lagt fram. Ólafur Þór Gunnarsson þakkar fyrir framlagt svar og óskar fært til bókar:<EM>"Ég tel mikilvægt að sveitarfélagið setji sér viðmið og reglur eftir því sem lög leyfa um stöðu gáma í bænum.</EM><EM>Ólafur Þór Gunnarsson"</EM> Ármann Kr. Ólafsson lagði fram eftirfarandi bókun:<EM>"Tek undir bókun og óska jafnframt eftir því að Sambandi íslenskra sveitarfélaga verði sent erindi þess efnis að það beiti sér fyrir því að sveitarfélög fái úrræði til að takast á við lausafé sem skemmir ásýnd sveitarfélaga.</EM><EM>Ármann Kr. Ólafsson"</EM>
06
Bæjarráð - 2696. fundur
Ólafur Þór Gunnarsson lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Bæjarráð óskar eftir minnisblaði byggingarfulltrúa um reglur um gáma á lóðum og yfirlit yfir stöðu gáma á lóðum í bænum.Ólafur Þór Gunnarsson"Bæjarráð samþykkir tillöguna.