Staða byggingarframkvæmda á lóðum
Málsnúmer: 1308413
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2726. fundur
Framkvæmdaráð samþykkir að fela byggingarfulltrúa að hefja dagsektarferli vegna Akrakórs 6 og Gulaþings 23. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir að fela byggingarfulltrúa að hefja dagsektarferli vegna Akrakórs 6 og Gulaþings 23.
02
Bæjarráð - 2713. fundur
Á fundi framkvæmdaráðs 17. desember 2013 lagði byggingarfulltrúi fram og skýrði greinargerð um stöðu byggingarframkvæmda á lóðum. Fram kom að fjölmargir lóðarhafar hafa ekki staðið við úthlutunarskilmála. Á fundinum var samþykkt að fela sviðsstjóra og byggingarfulltrúa að leggja fram á næsta fundi lista yfir lóðarhafa, sem ekki hafa sinnt byggingarframkvæmdum um árabil. Sviðsstjóri leggur til við bæjarráð að samþykkt verði af ofangreindum ástæðum, að fela byggingarfulltrúa að hefja dagsektarferli vegna þessara lóða, Fagraþing 2, Kleifakór 6, Vindakór 10-12 og Ásaþing 1-11.$line$
Bæjarráð samþykkir að fela byggingarfulltrúa að hefja dagsektarferli vegna þessara lóða, Fagraþing 2, Kleifakór 6, Vindakór 10-12 og Ásaþing 1-11.