Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Félagslegar íbúðir, kaup Kópavogsbæjar.

Málsnúmer: 1308414

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1090. fundur

Sviðsstjóri lagði fram minnisblað deildarstjóra eignadeildar, dags. 30. janúar 2014, vegna kaupa og byggingar félagslegra íbúða. Formaður vísar málinu til bæjarstjórnar. $line$

Lagt fram.

02

Framkvæmdaráð - 60. fundur

Frá deildarstjóra eignadeildar

Sviðsstjóri lagði fram minnisblað deildarstjóra eignadeildar dags. 30. janúar 2014, vegna kaupa og byggingu félagslegra íbúða. Formaður vísar málinu til bæjarstjórnar.

03

Bæjarstjórn - 1085. fundur

Gunnar Ingi Birgisson lagði fram eftirfarandi tillögu:<EM>"Lagt er til að tvær lóðir verði teknar frá undir byggingu félagslegra íbúða á vegum Kópavogsbæjar. Önnur lóðin verði í Vatnsendahlíð, samtals 22 íbúðir og hin á Glaðheimasvæði, samtals 22 íbúðir. Bygging íbúðanna hefðist strax á næsta ári í Vatnsendahlíð og síðan í beinu framhaldi á Glaðheimasvæðinu. Hönnun og bygging íbúðanna verði boðin út í opnu útboði.</EM><EM>Gunnar Ingi Birgisson</EM><EM></EM><EM>Greinargerð</EM><EM>Mikill skortur er á félagslegum íbúðum í Kópavogi. Lítið hefur gengið að fjölga félagslegum íbúðum í Kópavogi undanfarin ár og biðlisti lengist stöðugt. Margar ástæður eru fyrir þessu ástandi m.a. hátt verð á íbúðum til sölu, ákveðin tregða byggingaraðila að nýjum íbúðum að blanda saman "bæjaríbúðum" og almennum söluíbúðum. Forsvarsmenn bæjarins hafa haldið því fram að ekki sé hægt að byggja félagslegar leiguíbúðir fyrr en það sé öruggt að lán fáist hjá Íbúðalánasjóði og einnig að þessar fjárfestingar auki skuldahlutfall bæjarins. Rétt er að benda á að lántökur í dag á hinum almenna markaði eru hagstæðari en Íbúðalánasjóðslán. Kópavogsbúar, sem eru í neyð í húsnæðismálum eiga ekki að líða fyrir ákvarðanatökuleysi yfirvalda bæjarins. Svipuð staða var uppi á tíunda áratug síðustu aldar. Þá tók þáverandi meirihluti þá ákvörðun að fjölga félagslegum íbúðum verulega og á þriðja hundrað slíkar íbúðir voru byggðar á þessum árum, sem er uppistaðan í félagsíbúðaeign Kópavogsbæjar."</EM><EM></EM>Rannveig Ásgeirsdóttir lagði til að tillögu Gunnars Inga Birgisson yrði vísað til nýstofnaðrar nefndar bæjarins um húsnæðismarkaðinn.Hlé var gert á fundi kl. 17:49. Fundi var fram haldið kl. 18:03.Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslutillögu Rannveigar Ásgeirsdóttur með níu atkvæðum gegn einu. Einn bæjarfulltrúi sat hjá við afgreiðslu málsins.

04

Framkvæmdaráð - 55. fundur

Frá deildarstjóra eignadeildar og fjármálastjóra

Sviðsstjóri lagði fram minnisblað deildarstjóra eignadeildar og fjármálastjóra dags. 17. september, varðandi kaup Kópavogsbæjar á félagslegum íbúðum 2011, 2012 og 2013.Hjálmar Hjálmarsson þakkar svarið við fyrirspurninni.

05

Framkvæmdaráð - 54. fundur

Hjálmar Hjálmarsson spyr hver sé staðan á innkaupum á félagslegum íbúðum?