Beint í efni
Til baka í fundargerðir
Beiðni um styrk vegna þátttöku barna úr Kópavogi í Evrópukeppni einstaklinga í í skák september 2013
Málsnúmer: 1308596
Ferill máls
01
Íþróttaráð - 29. fundur
Erindi frá Braga Þór Thoroddsen, dags. 6. mars 2013, þar sem óskað er eftir styrk fyrir Álfhólsskóla vegna NM í skólaskák barnaskólasveita árið 2012. Bæjarstjóri vísaði erindinu áfram til íþróttaráðs og Skákstyrktarsjóðs Kópavogs til afgreiðslu.
Íþróttafulltrúi upplýsti að Skákstyrktarsjóður Kópavogs hefði tekið erindið fyrir á fundi sínum 29. október s.l. og afgreitt eftirfarandi:<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /><o:p></o:p>
"SSK getur ekki orðið við erindinu enda hefur SSK þegar veitt skólanum styrk að upphæð kr. 250.000,- til verkefnisins". <o:p></o:p>
02
Bæjarstjórn - 1081. fundur
Mál sem ágreiningur var um í bæjarráði. Samþykkt að vísa málinu til bæjarstjóra með þremur atkvæðum gegn tveimur.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs með sex atkvæðum gegn fimm.
03
Bæjarráð - 2698. fundur
Frá Helga Ólafssyni, f.h. Skáksambands Íslands, dags. 27. ágúst, varðandi beiðni um styrk vegna þátttöku barna úr Kópavogi í Evrópukeppni einstaklinga í skák sem haldin verður í Svartfjallalandi í september 2013.
Lagt fram. Rannveig Ásgeirsdóttir leggur til að erindinu verði vísað til bæjarstjóra. Hjálmar Hjálmarsson leggur til að erindinu verði vísað til íþróttaráðs. Arnþór Sigurðsson leggur fram eftirfarandi fyrirspurn: "Telur bæjarfulltrúi Ómar Stefánsson eðlilegt að þetta mál sé afgreitt af geðþótta en allar aðrar íþróttir og tómstundir í bæjarfélaginu fari eftir reglum sem settar eru af viðkomandi nefndum?" Samþykkt að vísa til bæjarstjóra með þremur atkvæðum gegn tveimur. Ómar Stefánsson svarar fyrirspurn: "Ég tel að afgreiðslur bæjarstjóra séu teknar að vel ígrunduðu máli." Hjálmar Hjálmarsson bókar: "Ég tel það líka." Guðríður Arnardóttir bókar um atkvæðagreiðsluna: "Ég tel eðlilegt að þessi beiðni fái sömu afgreiðslu og sambærilegar beiðnir vegna keppnisferða í íþróttum og íþróttaráð fjalli um málið."