Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Hestheimar 14-16. Beiðni um breytt eignarhald

Málsnúmer: 1309198

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2706. fundur

Lagður fram til staðfestingar samningur milli Kópavogsbæjar, annars vegar og Hestamannafélagsins Spretts o.fl., hins vegar, um breytt eignarhald á Hestheimum 14 - 16.

Bæjarráð samþykkir samninginn með þremur atkvæðum. Tveir fulltrúar sátu hjá við afgreiðslu málsins.Sviðsstjóri umhverfissviðs og bæjarlögmaður sátu fundinn undir þessum lið.

02

Bæjarráð - 2702. fundur

Frá bæjarlögmanni og fjármála- og hagsýslustjóra, dags. 23. september, umsögn sem óskað var eftir í bæjarráði þann 12. september sl. um beiðni hestamannafélagsins Spretts um breytt eignarhald á Hestheimum 14-16.

Bæjarráð samþykkir erindið með fimm atkvæðum en að tryggt verði að <SPAN style="FONT-FAMILY: "Calibri Light","sans-serif"; FONT-SIZE: 11pt; mso-fareast-font-family: "Times New Roman"; mso-bidi-font-family: Arial; mso-fareast-language: EN-US; mso-ansi-language: IS; mso-bidi-language: AR-SA">kvaðir um framsal, veðsetningu og forkaupsrétt verði áfram á lóðinni. Aukinheldur verði tryggt, með ákvæðum í samþykktum hinna óstofnuðu félaga, að hin óstofnuðu félög verði að fullu í eigu og/eða undir yfirráðum hestamannafélagsins, í samræmi við ákvæði samnings aðila. </SPAN>

03

Bæjarráð - 2699. fundur

Frá Hestamannafélaginu Spretti, dags. 30. ágúst, breytt eignarhald á lóðinni Hestheimar 14 - 16.

Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar sviðsstjóra stjórnsýslusviðs.