Laufbrekka 8. Viðbygging.
Málsnúmer: 1309251
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1095. fundur
Lagt fram að nýju erindi Árna Friðrikssonar, arkitekts, dags. 27.11.2013, að breyttu deiliskipulagi Laufbrekku 8. Í breytingunni felst að byggð verður 34m2 viðbygging við vesturhlið íbúðarhússins.
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar með 8 atkv. og þremur hjásetum.
02
Skipulagsnefnd - 1238. fundur
Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju erindi Árna Friðrikssonar, arkitekts, dags. 27.11.2013, að breyttu deiliskipulagi Laufbrekku 8. Í breytingunni felst að byggð verður 34m2 viðbygging við vesturhlið íbúðarhússins. Hæsti punktur viðbyggingar er 3,2m og er hún 7 x 4,75m að grunnfleti sbr. uppdráttum dags. 25.11.2013. í mkv. 1:100. Á fundi skipulagsnefndar 10.12.2013 var afgreiðslu málsins frestað. Á fundi skipulagsnefndar 18.2.2014 var samþykkt með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna að nýju framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Laufbrekku 6, 7, 9, 10, 11 og 13 ásamt Nýbýlavegi 28 og 30. Kynningu lauk 26.3.2014. Athugasemd barst frá Magnúsi Þór Sverrissyni, Laufbrekku 9, dags. 25.3.3014.$line$$line$Lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 15.4.2014.
Samþykkt. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
03
Skipulagsnefnd - 1236. fundur
Lagt fram að nýju erindi Árna Friðrikssonar, arkitekts, dags. 27.11.2013, að breyttu fyrirkomulagi Laufbrekku 8. Í breytingunni felst að byggð verður 34m2 viðbygging við vesturhlið íbúðarhússins. Hæsti punktur viðbyggingar er 3,2m og er hún 7 x 4,75m að grunnfleti sbr. uppdráttum dags. 25.11.2013. í mkv. 1:100. Á fundi skipulagsnefndar 10.12.2013 var afgreiðslu málsins frestað.
04
Skipulagsnefnd - 1233. fundur
Lagt fram erindi Árna Friðrikssonar, arkitekts, dags. 27.11.2013, að breyttu deiliskipulagi Laufbrekku 8. Í breytingunni felst að byggð verður 34m2 viðbygging við vesturhlið íbúðarhússins. Hæsti punktur viðbyggingar er 3,2m og er hún 7 x 4,75m að grunnfleti sbr. uppdráttum dags. 25.11.2013. í mkv. 1:100.$line$$line$Fyrra erindi vegna sömu lóðar var hafnað á fundi skipulagsnefndar 5.11.2013. Sú breytingartillaga gerði ráð fyrir viðbyggingu sem var 2,1m hærri en sú sem nú er fjallað um og var henni hafnað á grundvelli athugasemda sem bárust á kynningartíma.
Frestað.
05
Bæjarstjórn - 1085. fundur
Að lokinni kynningu var lögð fram að nýju tillaga Árna Friðrikssonar, arkitekts, f.h. lóðarhafa. Skipulagsnefnd hafnaði framlagðri breytingartillögu.$line$Bæjarráð samþykkti afgreiðslu skipulagsnefndar, hafnaði erindinu og vísaði því til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs með 11 atkvæðum og hafnar tillögunni.
06
Skipulagsnefnd - 1230. fundur
Lögð fram tillaga Árna Friðrikssonar, arkitekts, f.h. lóðarhafa. Í breytingunni felst að byggja 33,25m2 viðbyggingu á 2. hæð vesturhliðar íbúðarhússins sbr. uppdráttum dags. 2.9.2013 í mvk. 1:200 og 1:500.
Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða breytingartillögu fyrir lóðarhöfum Laufbrekku 6, 7, 9, 10, 11 og 13 ásamt Nýbýlavegi 28 og 30.