Útboð snjómoksturs gangstétta og stíga, skv. rammasamningi.
Málsnúmer: 1309298
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2704. fundur
Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar.$line$8. október 2013 voru opnuð tilboð í verkið "Vetrarþjónusta á gangstéttum og stígum. Rammasamningsútboð vesturbær Kópavogs og hluti austurbæjar." Skv. útboðsgögnum gerðum af umhverfissviði Kópavogs dags. október 2013. Útboðið var opið og bárust tvö tilboð. Framkvæmdaráð samþykkir að gerðir verði samningar við þá tvo verktaka, sem gerðu tilboð í verkið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.$line$
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu framkvæmdaráðs og samþykkir að leitað verði samninga við þá tvo verktaka, sem gerðu tilboð í verkið.
02
Framkvæmdaráð - 56. fundur
Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar
8. október 2013 voru opnuð tilboð í verkið "Vetrarþjónusta á gangstéttum og stígum. Rammasamningsútboð vesturbær Kópavogs og hluti austurbæjar." Skv. útboðsgögnum gerðum af umhverfissviði Kópavogs dags. október 2013. Útboðið var opið og bárust tvö tilboð. Framkvæmdaráð samþykkir að gerðir verði samningar við þá tvo verktaka, sem gerðu tilboð í verkið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
03
Bæjarráð - 2700. fundur
Deildastjóri framkvæmdadeildar óskar eftir heimild til útboðs snjómoksturs gangstétta og stíga, skv. rammasamningi. Framkvæmdaráð heimilar útboð snjómoksturs gangstétta og stíga skv. rammasamningi. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu framkvæmdaráðs og heimilar útboð snjómoksturs gangstétta og stíga skv. rammasamningi.Hjálmar Hjálmarsson lagði fram eftirfarandi bókun:<EM>"Ég er mótfallinn þessu útboði og tel gatnahreinsun betur fyrir komið í höndum starfsmanna bæjarins.</EM><EM>Hjálmar Hjálmarsson"</EM>Ómar Stefánsson lagði fram eftirfarandi bókun:<EM>"Eins og staðan er núna á bærinn ekki tæki til að hreinsa allan bæinn.</EM><EM>Ómar Stefánsson"</EM>Ólafur Þór Gunnarsson lagði fram eftirfarandi bókun:<EM>"Undirritaður er sammála því sjónarmiði Hjálmars Hjálmarssonar að betur fari á því að bærinn sinni þessu verkefni en forsenda þess er að bærinn fjárfesti í tækjum til að sinna því.</EM><EM>Ólafur Þór Gunnarsson"</EM>
04
Framkvæmdaráð - 55. fundur
Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar
Deildastjóri framkvæmdadeildar óskar eftir heimild til útboðs snjómoksturs gangstétta og stíga, skv. rammasamningi. Framkvæmdaráð heimilar útboð snjómoksturs gangstétta og stíga skv. rammasamningi. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.