Til baka í fundargerðir
Skógarlind 1. Breytt deiliskipulag.
Málsnúmer: 1309441
Ferill máls
01
Skipulagsnefnd - 1241. fundur
Lagt fram erindi Kristins Ragnarssonar, arkitekts, dags. 16.7.2014 f.h. lóðarhafa þar sem óskað er eftir breytingu á deiliskipulagi Skógarlindar 1 ásamt uppdrætti og yfirlýsingu lóðarhafa dags. 16.7.2014.
Lagt fram og kynnt. Afgreiðslu frestað.
02
Skipulagsnefnd - 1230. fundur
Kynnt tillaga Kristins Raganarssonar, arkitekts, f.h. lóðarhafa dags. 20. september 2013, að byggingu sex hæða hótels og íbúðarhótels með verslun, fundarsölum og spa/æfingaraðstöðu á fyrstu hæð. Heildarbyggingarmagn er áætlað um 17.700m2 sbr. uppdráttum dags. 20.9.2013 í mkv. 1:500 og 1:1000.
Lagt fram og kynnt. Skipulagsnefnd lítur jákvætt á erindið og óskar eftir því að fylgjast með framvindu þess.