Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Greiðsla framlaga til eflingar tónlistarfræðslu og jöfnunar á aðstöðumun nemenda.

Málsnúmer: 1309516

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2827. fundur

Frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, dags. 7. júní, lagt fram erindi vegna nýs samkomulags um stuðning við tónlistarnám og jöfnun á aðstöðumun nemenda til tónlistarnám, þar sem sveitarfélögum er veittur frestur til 24. júní nk. til að skila inn upplýsingum um tónlistanám vegna skólaársins 2015-2016.

Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra menntasviðs til afgreiðslu.

02

Bæjarráð - 2708. fundur

Frá fjármála- og hagsýslustjóra, dags. 6. nóvember, umsögn sem óskað var eftir í bæjarráði þann 3. október sl. varðandi greiðslur framlaga til eflingar tónlistarfræðslu.

Lagt fram.

03

Bæjarráð - 2702. fundur

Frá jöfnunarsjóði sveitarfélaga, dags. 24. september, tilkynning um að samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga um eflingu tónlistarnáms og jöfnun á aðstöðumun nemenda er útrunnið, svo óvíst er hvenær fyrsta greiðsla framlaga fyrir skólaárið 2013 - 2014 verði möguleg.

Bæjarráð vísar erindinu til fjármála- og hagsýslustjóra til umsagnar.