Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Staðfesting Kópavogsbæjar á fjárfestingu og lántöku vegna stækkunar endurvinnslustöðva Sorpu bs.

Málsnúmer: 1310086

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1090. fundur

Staðfesting á fyrri ákvörðun bæjarstjórnar.$line$

Bæjarstjórn Kópavogs samþykkir hér með að veita Sorpu bs., sem sveitarfélagið á í samvinnu við önnur sveitarfélög, einfalda og hlutfallslega ábyrgð miðað við eignarhluti 31. desember 2012 í Sorpu bs. vegna lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 160.000.000 kr. Er ábyrgð þessi veitt sbr. heimild í 2. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, og veitir sveitarstjórnin lánasjóðnum veð í tekjum sínum til tryggingar þeirri ábyrgð, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sömu laga. Ábyrgðin tekur til allra greiðslna sem og hvers kyns kostnaðar sem hlýst af vanskilum. Er lánið tekið til að fjármagna framkvæmdir við endurvinnslustöðvar Sorpu bs., sem fellur undir lánshæf verkefni, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.

<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /><o:p></o:p>

Bæjarstjórn skuldbindur hér með Kópavogsbæ sem einn af eigendum Sorpu bs. til að selja ekki félagið að neinu leyti til einkaaðila.

<o:p></o:p>

Fari svo að Kópavogsbær selji eignarhlut í Sorpu bs. til annarra opinberra aðila skuldbindur Kópavogsbær sig til að sjá til þess að nýr eigandi yfirtaki jafnframt ábyrgð á láninu að sínum hluta.

<o:p></o:p>

Jafnframt er Ingólfi Arnarsyni, fjármálastjóra Kópavogsbæjar, kt. 050656-3149, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess að staðfesta f.h. Kópavogsbæjar veitingu ofangreindrar veðtryggingar og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hverskyns skjöl fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast veitingu tryggingar þessarar.

Bæjarstjórn samþykkir ofangreint einróma.

02

Bæjarstjórn - 1084. fundur

Frá Sorpu bs., dags. 2. október, varðandi lántöku byggðasamlagsins í tengslum við stækkun endurvinnslustöðva á Ánanaustum í Reykjavík og Blíðubakka í Mosfellsbæ. Bæjarráð samþykkir lántöku byggðasamlagsins fyrir sitt leyti.

Bæjarstjórn samþykkir einróma lántöku byggðasamlagsins.

03

Bæjarráð - 2703. fundur

Frá Sorpu bs., dags. 2. október, varðandi lántöku byggðasamlagsins í tengslum við stækkun endurvinnslustöðva á Ánanaustum í Reykjavík og Blíðubakka í Mosfellsbæ.

Bæjarráð samþykkir lántöku byggðasamlagsins fyrir sitt leyti.