Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Ný umsókn um lóð undir Ibis-Budget hótel

Málsnúmer: 1310121

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2704. fundur

Umsögn sviðsstjóra umhverfissviðs, sem óskað var eftir í bæjarráði þann 10. október, og lögð var fram á fundi framkvæmdaráðs þann 16. október, sbr. lið 5 í fundargerð. Ekki er talið tímabært að fjalla um nýtingu þessara tilteknu lóða fyrr er framtíðaruppbygging svæðisins verður skoðuð í framhaldi af endurskoðun aðalskipulags Kópavogs.

<P>Bæjarráð samþykkir að fela sviðsstjóra umhverfissviðs að svara bréfritara á grundvelli umsagnarinnar.</P>

02

Framkvæmdaráð - 56. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs

Sviðsstjóri gerði grein fyrir aðstæðum á því svæði, sem sótt er um og mun senda bæjarráði umsögn.

03

Bæjarráð - 2703. fundur

Frá Reynimel ehf., dags. 8. október, umsókn um lóð undir Ibis-Budget hótel.

Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra umhverfissviðs til umsagnar.