Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Samstarfssamningur um rekstur Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins

Málsnúmer: 1310213

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2842. fundur

Frá Rekstrarfélagi Skálafells ehf., dags. 1. október, lagt fram bréf til Borgarstjórans í Reykjavík um leigusamning Reykjavíkurborgar við eiganda lögbýlisins Stardals um landsvæði sem tekur til skíðasvæðisins í Skálafelli, þar sem félagið óskar eftir að fá að yfirtaka leigusamninginn. Samhliða yfirtöku Rekstrarfélags Skálafells ehf. á leigusamningnum yrði gengið til samninga við stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um rekstur á Skálafellssvæðinu.

Lagt fram.

02

Bæjarráð - 2714. fundur

Nýr undirritaður samstarfssamningur um rekstur skíðasvæða hbsv. lagður fram á stjórnarfundi SSH 6. janúar, sbr. lið 1 í fundargerð.

Lagt fram.

03

Bæjarráð - 2710. fundur

Frá fjármála- og hagsýslustjóra, dags. 27. nóvember, umsögn um nýjan samstarfssamning um rekstur skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins.

Bæjarráð samþykkir samninginn en beinir því til stjórnar SSH að skerpt verði á skilgreiningu og skilning á gr. 2.5.

04

Bæjarráð - 2704. fundur

Tillaga að nýjum samstarfssamning um rekstur Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins.

Bæjarráð vísar tillögu að nýjum samningi til fjármála- og hagsýslustjóra til umsagnar.