Ábendingar um endurbætur og lagfæringar á frjálsíþróttaaðstöðu á Kópavogsvelli og í Fífunni
Málsnúmer: 1310361
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2725. fundur
Á fundi bæjarráðs 24. okt. sl., var tekið fyrir erindi frá Frjálsíþróttasambandi Íslands, dags. 22. október, óskað er eftir breytingum á frjálsíþróttaaðstöðu á Kópavogsvelli og í Fífunni. Bæjarráð vísaði erindinu til íþróttaráðs og sviðsstjóra umhverfissviðs til umsagnar. Íþróttaráð frestaði erindinu á fundi sínum 21. nóv. og fól íþróttafulltrúa að vinna áfram í málinu ásamt sviðsstjóra umhverfissviðs.$line$Á fundi íþróttaráðs þann 20. mars sl., var lögð fram umsögn ásamt tillögum varðandi endurbætur á frjálsíþróttaaðstöðu á Kópavogsvelli og í Fífunni. $line$Íþróttaráð samþykkir framlagða umsögn fyrir sitt leyti og mælir með því við bæjarráð að unnið verði að endurbótum.$line$
Bæjarráð felur umhverfissviði að vinna að endurbótum í samræmi við framlagða umsögn. Ómar Stefánsson vék af fundi undir þessum lið.
02
Íþróttaráð - 33. fundur
Á fundi bæjarráðs 24. okt. sl., var tekið fyrir erindi frá Frjálsíþróttasambandi Íslands, dags. 22. október, óskað er eftir breytingum á frjálsíþróttaaðstöðu á Kópavogsvelli og í Fífunni. Bæjarráð vísaði erindinu til íþróttaráðs og sviðsstjóra umhverfissviðs til umsagnar. Íþróttaráð frestaði erindinu á fundi sínum 21. nóv. og fól íþróttafulltrúa að vinna áfram í málinu ásamt sviðsstjóra umhverfissviðs.
Lögð fram umsögn ásamt tillögum varðandi endurbætur á frjálsíþróttaaðstöðu á Kópavogsvelli og í Fífunni. Íþróttaráð samþykkir framlagða umsögn fyrir sitt leyti og mælir með því við bæjarráð að unnið verði að endurbótum.
03
Íþróttaráð - 29. fundur
Frá Frjálsíþróttasambandi Íslands, dags. 22. október, óskað eftir viðhaldi á frjálsíþróttaaðstöðu á Kópavogsvelli og í Fífunni.$line$Bæjarráð vísaði erindinu til íþróttaráðs og sviðsstjóra umhverfissviðs til umsagnar$line$
Erindinu frestað og íþróttafulltrúa falið að vinna áfram í málinu ásamt sviðsstjóra umhverfissviðs.
04
Bæjarráð - 2705. fundur
Frá Frjálsíþróttasambandi Íslands, dags. 22. október, óskað eftir breytingum á frjálsíþróttaaðstöðu á Kópavogsvelli og í Fífunni.
Bæjarráð vísar erindinu til íþróttaráðs og sviðsstjóra umhverfissviðs til umsagnar. Ómar Stefánsson vék af fundi undir þessum lið.