Bæjarstjórn - 1085. Fundur haldinn 12. nóvember 2013.
Málsnúmer: 1311008F
Ferill máls
01
Skipulagsnefnd - 1233. fundur
1002159 - Útikennslusvæði í Kópavogi$line$Lögð fram að nýju tillaga umhverfisfulltrúa að útikennslusvæði á Víghólasvæði. $line$Skipulagsnefnd samþykkti framlagða breytingartillögu. $line$Bæjarráð samþykkti afgreiðslu skipulagsnefndar og vísaði tillögunni til bæjarstjórnar til afgreiðslu.$line$Bæjarstjórn samþykkir framlagða breytingartillögu með 11 atkvæðum.$line$$line$1311045 - Kópavogstún 6-8. Svalaskýli.$line$Lagt fram erindi Friðriks Friðrikssonar, arkitekts, f.h. húsfélagsins að Kópavogstúni 6-8. Skipulagsnefnd taldi breytinguna ekki hafa grenndaráhrif og samþykkti tillöguna með tilvísan í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. $line$Bæjarráð samþykkti afgreiðslu skipulagsnefndar og vísaði tillögunni til bæjarstjórnar til afgreiðslu.$line$Bæjarstjórn samþykkir framlagða breytingartillögu með 10 atkvæðum.$line$Elfur Logadóttir vék af fundi undir þessum lið.$line$$line$1307353 - Boðaþing 1-3. Breytt deiliskipulag.$line$Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju tillaga Ragnars Auðunns Birgissonar, arkitekts, f.h. Húsvirki. Skipulagsnefnd samþykkti framlagða breytingartillögu.$line$Bæjarráð samþykkti afgreiðslu skipulagsnefndar og vísaði tillögunni til bæjarstjórnar til afgreiðslu.$line$Bæjarstjórn samþykkir framlagða breytingartillögu með 11 atkvæðum.$line$$line$1309324 - Efstaland/Smiðjuvegur. Afmörkun íbúðarlóðar.$line$Á fundi skipulagsnefndar 24. september 2013 var lögð fram tillaga að nýjum lóðamörkum íbúðalóðar að Smiðjuvegi/Efstalandi. Skipulagsnefnd hafnaði tillögunni. Bæjarráð samþykkti afgreiðslu skipulagsnefndar, hafnaði erindinu og vísaði tillögunni til bæjarstjórnar til afgreiðslu.$line$Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs með 11 atkvæðum og hafnar tillögunni.$line$$line$1311005 - Markavegur 2-3. Breytt deiliskipulag.$line$Lagt fram erindi Kristins Valdimarssonar, lóðarhafa, um breytt deiliskipulag fyrir lóðina við Markaveg 2-3. Skipulagsnefnd hafnaði tillögunni. Bæjarráð samþykkti afgreiðslu skipulagsnefndar, hafnaði erindinu og vísaði því til bæjarstjórnar til afgreiðslu.$line$Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs með 11 atkvæðum og hafnar tillögunni.$line$$line$1309251 - Laufbrekka 8. Viðbygging.$line$Að lokinni kynningu var lögð fram að nýju tillaga Árna Friðrikssonar, arkitekts, f.h. lóðarhafa. Skipulagsnefnd hafnaði framlagðri breytingartillögu.$line$Bæjarráð samþykkti afgreiðslu skipulagsnefndar, hafnaði erindinu og vísaði því til bæjarstjórnar til afgreiðslu.$line$Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs með 11 atkvæðum og hafnar tillögunni.$line$$line$1311025 - Vallaþing. Gatnagerð. Framkvæmdaleyfi.$line$Lögð fram tillaga fyrir 1. áfanga gatnagerðar við Vallaþing.$line$Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu að framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmd við Vallaþing. Bæjarráð samþykkti afgreiðslu skipulagsnefndar og vísaði málinu til bæjarstjórnar til staðfestingar.$line$Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs og samþykkir framlagða tillögu að framkvæmdaleyfi með sex atkvæðum. Fimm bæjarfulltrúar sátu hjá.$line$$line$1310352 - Tillögur svæðisskipulagsnefndar að breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2001-2024 vegna aðalskipulags Reykjavíkur og annarra sveitarfélaga$line$Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að breytingartillögur á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2001-2023 vegna endurskoðunar aðalskipulags Reykjavíkur og annarra sveitarfélaga, verði samþykktar skv. 3. mgr. 25. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 9. gr. laga um umhverfisáhrif áætlana nr 105/2006.$line$Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar og samþykkir breytingartillögur á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins einróma.