Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Bæjarstjórn - 1086. Fundur haldinn 26. nóvember 2013.

Málsnúmer: 1311018F

Ferill máls

01

Skipulagsnefnd - 1233. fundur

1311007F - Skipulagsnefnd, 11. nóvember 1232. fundargerð í 5 liðum.$line$Lagt fram.$line$$line$1202610 - Aðalskipulag Kópavogs 2012-2024$line$Forseti óskaði eftir heimild fundarins til að gefa Birgi Sigurðssyni, skipulagsstjóra, orðið til að gera grein fyrir skipulagsmálum. Var það samþykkt. Þá tók Birgir Sigurðsson til máls og gerði grein fyrir Aðalskipulagi Kópavogs 2012 - 2024.$line$Aðalskipulag Kópavogs 2012-2024 var auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 frá og með 9. ágúst til 20. september 2013. Alls barst 31 athugasemd og ábendingar. Tillagan lögð fram að nýju ásamt tillögu að breytingum á greinargerð og uppdráttum.$line$Eftirtalin gögn lögð fram:$line$a) Aðalskipulag Kópavogsbæjar 2012-2024. Tillaga að uppfærðri greinargerð og umhverfisskýrslu (sbr. 9. gr. laga nr. 105/2006) eftir auglýsingu dags. 11. nóvember 2013.$line$b) Aðalskipulag Kópavogsbæjar 2012-2024. Tillaga að uppfærðum uppdráttum (þéttbýlisuppdráttur og sveitarfélagsuppdráttur) eftir auglýsingu dags. 11. nóvember 2013$line$c) Athugasemdir og ábendingar við tillögu að Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024 ásamt fylgiskjölum og tillögu að umsögnum og greinargerð dags. 11. nóvember 2013.$line$d) Tillaga að afgreiðslu eftir auglýsingu (sbr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010) greinargerð dags. 11. nóvember 2013.$line$$line$Kl. 17:44 vék Hjálmar Hjálmarsson af fundi.$line$$line$Með tilvísan í afgreiðslu skipulagsnefndar 11. nóvember 2013 og framlögð gögn samþykkir bæjarstjórn Kópavogs hér með Aðalskipulag Kópavogs 2012-2024 með áorðnum breytingum ásamt ofangreindum umsögnum um athugasemdir og ábendingar er bárust á kynningartíma. Aðalskipulagið byggir á tillögu að breytingu á Svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2001-2024 sem auglýst var samtímis tillögu að Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024 og er nú í lokaferli. Bæjarstjórn Kópavogs samþykkir jafnframt að vísa hinu nýja aðalskipulagi Kópavogs til afgreiðslu Skipulagsstofnunar skv. 2. mgr. 32. gr skipulagslaga nr. 123/2010. $line$Samþykkt einróma.