Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Starfshópur um styrki til íþrótta- og tómstundamála

Málsnúmer: 1311108

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1096. fundur

Frá íþróttafulltrúa, lagðar fram að nýju tillögur starfshóps um styrki til íþrótta- og tómstundamála. Bæjarráð vísaði tillögunum til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Ólafur Þór Gunnarsson lagði fram eftirfarandi bókun:

"Vinstri græn harma að starfshópur um styrki til íþrótta- og tómstundamála hafi ekki borið gæfu til að samþykkja forvarna- og lýðheilsustyrki fyrir eldra fólk. Vinstri græn munu halda áfram að berjast fyrir þessu mikilvæga máli. VG undrast í ljósi þeirrar umræðu sem nú er uppi í samfélaginu og jafnvel innan bæjarfélagsins að menn treysti sér ekki til að samþykkja þetta sjálfsagða mál.

Ólafur Þór Gunnarsson"
Bæjarstjórn samþykkir tillögur starfshópsins með átta atkvæðum gegn einu. Tveir bæjarfulltrúar greiddu ekki atkvæði.

02

Bæjarráð - 2729. fundur

Frá íþróttafulltrúa, lagðar fram að nýju tillögur starfshóps um styrki til íþrótta- og tómstundamála.

Bæjarráð vísar tillögunum til afgreiðslu bæjarstjórnar.

03

Bæjarráð - 2723. fundur

Frá íþróttafulltrúa, lagðar fram tillögur starfshóps um styrki til íþrótta- og tómstundamála.

Bæjarráð vísar tillögunum aftur til hópsins og óskar eftir afstöðu til forvarna- og lýðheilsustyrks til aldraðra sbr. afgreiðslu á erindi þar um.

04

Bæjarráð - 2709. fundur

Skipan fimm fulltrúa í starfshóp um styrki til íþrótta- og tómstundamála, þrír frá meirihluta og tveir frá minnihluta.$line$

Bæjarráð skipar eftirtalda í starfshópinn:Af A-lista: Aðalsteinn Jónsson, Héðinn Steingrímsson, Una María Óskarsdóttir.Af B-lista: Kristín Sævarsdóttir, Arnþór Sigurðsson.Áheyrnarfulltrúi: Hjálmar Hjálmarsson.

05

Bæjarráð - 2708. fundur

Lögð fram að nýju tillaga, sem frestað var á fundi ráðsins þann 7. nóvember:$line$Meirihluti bæjarráðs leggur til að stofnaður verði starfshópur sem fari yfir skipulag styrkja til íþrótta- og tómstundamála. Hópurinn skal fara yfir kosti og galla núverandi fyrirkomulags og koma með tillögu til breytinga ef þess er talin þörf. Hópurinn skal skipaður 5 fulltrúum, þremur frá meirihluta og tveimur frá minnihluta.$line$Ármann Kr. Ólafsson, Ómar Stefánsson, Rannveig Ásgeirsdóttir$line$

Bæjarráð samþykkir tillöguna.