Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Skeljabrekka 4, niðurrif

Málsnúmer: 1311137

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2718. fundur

Mánudaginn 3. febrúar 2014 voru opnuð tilboð í verkið "Niðurrif húss við Skeljabrekku 4" skv. útboðsgögnum gerðum af verkfræðistofunni Wiium ráðgjöf ehf. dags. janúar 2014. Útboðið var lokað. Framkvæmdaráð heimilar að samið verði við lægstbjóðanda VGH-Mosfellsbæ ehf. um verkið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.

Bæjarráð samþykkir að leitað verði samninga við lægstbjóðanda um niðurrif húss við Skeljabrekku 4.Hjálmar Hjálmarsson lagði fram eftirfarandi bókun:<EM>"Lýsi vonbrigðum með hve hratt á að framkvæma niðurrif hússins og að ekki skuli hugað að nýtingu þess þegar ekki liggur fyrir skipulag svæðisins.</EM><EM>Hjálmar Hjálmarsson"</EM>Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði fram eftirfarandi bókun:<EM>"Ég fagna því að þetta hús skuli vera fjarlægt því það blasir við þegar keyrt er inn í Kópavog og hefur ásýndin ekki verið góð fyrir Kópavog.</EM><EM>Ármann Kr. Ólafsson"</EM>

02

Framkvæmdaráð - 60. fundur

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar

Mánudaginn 3. febrúar 2014 voru opnuð tilboð í verkið "Niðurrif húss við Skeljabrekku 4" skv. útboðsgögnum gerðum af verkfræðistofunni Wiium ráðgjöf ehf. dags. janúar 2014. Útboðið var lokað. Framkvæmdaráð heimilar að samið verði við lægsbjóðanda VGH-Mosfellsbæ ehf. um verkið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.

03

Framkvæmdaráð - 57. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs.

Fyrir liggur samningur við lóðarhafa Skeljabrekku 4. Framkvæmdaráð heimilar að tilboða verði leitað í niðurrif á Skeljabrekku 4, þegar fyrir liggur þinglýst afsal.