Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2015-2040.
Málsnúmer: 1311250
Ferill máls
01
Skipulagsnefnd - 1268. fundur
Hrafnkell Proppé, svæðisskipulagsstjóri, færði nefndarmönnum og starfsmönnum skipulags- og byggingardeildar eintök af nýsamþykktu svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins, Höfuðborgarsvæðið 2040.
02
Skipulagsnefnd - 1263. fundur
Frá SSH, dags. 30. júní, lagt fram erindi vegna svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins þar sem tilkynnt er um að Skipulagsstofnun hafi staðfest nýtt svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins "Höfuðborgarsvæðið 2040" og við gildistöku þess falla úr gildi Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2001-2024, sem var staðfest 2002, og Svæðisskipulag vatnsverndar á höfuðborgarsvæðinu, sem var staðfest 1999.
Lagt fram.
03
Bæjarráð - 2782. fundur
Frá SSH, dags. 30. júní, lagt fram erindi vegna svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins þar sem tilkynnt er um að Skipulagsstofnun hafi staðfest nýtt svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins "Höfuðborgarsvæðið 2040" og við gildistöku þess falla úr gildi Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2001-2024, sem var staðfest 2002, og Svæðisskipulag vatnsverndar á höfuðborgarsvæðinu, sem var staðfest 1999.
Lagt fram.
04
Bæjarstjórn - 1116. fundur
Frá skipulagsstjóra, dags. 5. maí, lögð fram tillaga að Svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2015-2040, ásamt erindi Hrafnkels Á. Proppé svæðisskipulagsstjóra. Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu að Svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2015-2040 með áorðnum breytingum. Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum tillögu að svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins ásamt umhverfisskýrslu á grundvelli 2. mgr. 25. gr. laga nr. 123/2010 og 9. gr. laga nr. 105/2006.
05
Bæjarráð - 2774. fundur
Frá skipulagsstjóra, dags. 5. maí, lögð fram tillaga að Svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2015-2040, ásamt erindi Hrafnkels Á. Proppé svæðisskipulagsstjóra. Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu að Svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2015-2040 með áorðnum breytingum.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
06
Skipulagsnefnd - 1258. fundur
Lögð fram tillaga að Svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2015 - 2040 í samræmi við við 2. mgr. 25. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 9. gr. laga nr. 105/2006 dags. 22. ágúst 2014 ásamt erindi Hrafnkels Á. Proppé, svæðisskipulagsstjóra dags. 13. apríl 2015. Þá lögð fram fylgiskjölin: Skjal 1b Umhverfisskýrsla með auglýstri tillögu; Skjal 1c Breytingaskjal með auglýstri svæðisskipulagstillögu; Skjal 2 Innkomnar athugasendir og Skjal 3 Umsögn svæðisskipulagsnefndar um innkomnar athugasemdir.$line$$line$Einnig lagt fram minnisblað skipulagsstjóra dags. 4.5.2015.
Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu að Svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2015-2040 með áorðnum breytingum ásamt ofangreindum fylgiskjölum. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
07
Skipulagsnefnd - 1257. fundur
Lagt fram bréf frá svæðisskipulagsstjóra höfuðborgarsvæðisins dags. 13.4.2015.$line$$line$Lögð fram tillaga að nýju svæðisskipulagi og umhverfismati ásamt breytingartillögum og umsögn við innkomnum athugasemdum til staðfestingar í samræmi við 2. mgr. 25. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 9. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006. $line$$line$Lögð fram efirfarandi fylgirit:$line$Skjal 1a - Auglýst svæðisskipulagstillaga$line$Skjal 1b - Umhverfisskýrsla með auglýstri svæðisskipulagstillögu$line$Skjal 1c - Breytingarskjal með auglýstri svæðisskipulagstillögu$line$Skjal 2 - Innkomnar athugasemdir$line$Skjal 3 - Umsögn svæðisskipulagsnefndar um innkomnar athugasemdir
Afgreiðslu frestað. Skipulagsnefnd óskaði eftir umsögn skipulags- og byggingardeildar sem lögð verði fram á næsta fundi nefndarinnar 4. maí 2015.
08
Skipulagsnefnd - 1248. fundur
Lagðar fram skýrslurnar "Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2015-2040: Umferðarspá" dags. í október 2014 og "Höfuðborgarsvðið 2015-2040: Náttúra og útivist" dags. í október 2014.
Lagt fram og kynnt.
09
Skipulagsnefnd - 1243. fundur
Lögð fram kynning skipulagsstjóra SSH frá 15. ágúst 2014, þar sem farið er yfir forsögu, vinnuferil, helstu nýjungar, efnisþætti og næstu skref við gerð nýs svæðisskipulags fyrir höfuðborgarsvæðið.$line$$line$Lagðar fram til kynningar greinargerðir Skipulagsstofnunar "Skipulagsmál á Íslandi 2014: Lykilmælikvarðar og fyrirliggjandi áætlanir" dags. í ágúst 2014 og "Landsskipulagsstefna 2015-2026: Greining valkosta og umhverfisáhrifa" dags. í ágúst 2014.$line$$line$http://www.landsskipulag.is/um-landsskipulagsstefnu/frettir/nr/1015$line$http://www.landsskipulag.is/um-landsskipulagsstefnu/frettir/nr/1018
Lagt fram til kynningar.
10
Skipulagsnefnd - 1239. fundur
Lagt fram minnisblað skipulagsstjóra vegna tillögu að Svæðisskipulagi Höfuðborgarsvæðisins 2015-2040.
Lagt fram.
11
Bæjarstjórn - 1095. fundur
Lagt fram bréf frá Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, dags. 24. mars þar sem óskað er eftir umsögnum og athugasemdum vegna kynningar á tillögu að nýju svæðisskipulagi hbsv. 2015-2040. Skipulagsnefnd óskar eftir því að boðað verði til sérstaks samráðsfundar skipulagsnefndar, umhverfis- og samgöngunefndar og bæjarstjórnar þar sem fulltrúar SSH kynni framlagða vinnutillögu að nýju svæðisskipulagi.
<P>Lagt fram. </P>
12
Skipulagsnefnd - 1238. fundur
Frá bæjarráði:$line$Lagt fram bréf frá Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, dags. 24. mars þar sem óskað er eftir umsögnum og athugasemdum vegna kynningar á tillögu að nýju svæðisskipulagi hbsv. 2015-2040.
Skipulagsnend óskar eftir því að boðað verði til sérstaks samráðsfundar skipulagsnefndar, umhverfis- og samgöngunefndar og bæjarstjórnar þar sem fulltrúar SSH. kynni framlagða vinnutillögu að nýju svæðisskipulagi. Vísað til bæjarráðs og óskar skipulagsnefnd heilmildar til fundarboðunar.
13
Bæjarráð - 2725. fundur
Frá samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, dags. 24. mars, upplýsingar um kynningu á tillögu að nýju svæðisskipulagi hbsv. 2015-2040. og kallað eftir umsögnum og athugasemdum.
Bæjarráð felur almannatengli að kynna fundartíma vegna kynningu á tillögu að nýju svæðisskipulagi fyrir bæjarbúum. Bæjarráð vísar erindinu til skipulagsnefndar og umhverfis- og samgöngunefndar til úrvinnslu.
14
Bæjarstjórn - 1087. fundur
Forseti óskaði eftir heimild fundarins til að veita Hrafnkeli Proppé verkefnisstjóra hjá SSH orðið og kynna áherslur í vinnu við svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins. Var það samþykkt einróma.
Lagt fram.