Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Óskað eftir samstarfi við uppgræðslu árið 2014

Málsnúmer: 1311266

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2723. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 11. mars, umsögn, sem óskað var eftir í bæjarráði þann 21. nóvember sl., um erindi samtakanna Gróður fyrir fólk í landnámi Ingólfs varðandi mögulegt samstarf við uppgræðsluverkefni.

Þar sem Kópavogsbær innheimtir ekki gjöld af hesthúsaeigendum vegna losunar á taði, og ábyrgð og kostnaður vegna losunar hvílir á hesthúsaeigandum, vísar bæjarráð samtökunum á að leita samstarfs við hesthúsaeigendur eða verktaka sem vinna á vegum eigenda. Bent er á að leita þarf leyfis Heilbrigðiseftirlits fyrir losun hrossataðs á afmörkuðum tíma á afmörkuðu svæði.Hjálmar Hjálmarsson vék af fundi undir þessum lið.Sviðsstjóri umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið.

02

Bæjarráð - 2709. fundur

Frá Samtökunum Gróður fyrir fólk í Landnámi Ingólfs, dags. 12. nóvember, óskað eftir fundi varðandi fyrirhugað samstarf við Kópavogsbæ um nýtingu hrossataðs til uppgræðslu árið 2014.

Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra umhverfissviðs til umsagnar.Hjálmar Hjálmarsson vék af fundi undir þessum lið.