Starfshópur um stöðu húsnæðismarkaðarins
Málsnúmer: 1311339
Ferill máls
01
Félagsmálaráð - 1401. fundur
Theódóra S. Þorsteinsdóttir formaður bæjarráðs og Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri kynntu skýrslu starfshópsins.
Félagsmálaráð lýsir yfir ánægju með skýrsluna og þá stefnu sem þar kemur fram. Þær aðgerðir sem stefnt er að munu auka fjölbreytileika í húsnæðisúrræðum bæjarins og koma til móts við þann mikla vanda sem til staðar er á húsnæðismarkaði. Því fagnar ráðið.$line$Rannveig María Þorsteinsdóttir deildarstjóri sat fundinn undir þessum lið.
02
Bæjarstjórn - 1124. fundur
Frá starfshópi um stöðu húsnæðismarkaðarins, lögð fram skýrsla hópsins vegna húsnæðismála í Kópavogi.
Lagt fram.
03
Bæjarráð - 2791. fundur
Frá starfshópi um stöðu húsnæðismarkaðarins, lögð fram skýrsla hópsins vegna húsnæðismála í Kópavogi.
Lagt fram.
04
Bæjarráð - 2727. fundur
Skýrsla Capacent um fasteignamarkað í Kópavogi.
Lagt fram.Guðríður Arnardóttir lagði fram eftirfarandi fyrirspurn:<EM>"Hvenær skilaði Capacent þessari skýrslu til Kópavogsbæjar?</EM><EM>Hver vann fréttatilkynninguna uppúr skýrslunni?</EM><EM>Hefði ekki verið eðlilegra að bæjarfulltrúar hefðu fengið skýrsluna samdægurs og fréttatilkynning unnin í kjölfar þess að skýrslan var lögð fram í bæjarráði eða bæjarstjórn?</EM><EM>Guðríður Arnardóttir"</EM>Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði fram eftirfarandi svar:<EM>"Skýrslan barst kl. 18:22 mánudaginn 7. apríl og almannatengill bæjarins vann fréttatilkynningu upp úr henni. Áður hefur verið gerð athugasemd um að skýrslur, m.a. frá Capacent fari ekki beint á vef bæjarins, og í ljósi umræðunnar taldi ég mikilvægt að skýrslan væri birt opinberlega sem fyrst í fjölmiðlum.</EM><EM>Ármann Kr. Ólafsson"</EM><EM></EM>Guðríður Arnardóttir lagði fram eftirfarandi bókun:<EM>"Það hefur aldrei verið farið fram á að skýrslur sem unnar eru fyrir bæjarstjórn séu lagðar fram í fjölmiðlum áður en þær eru lagðar fram í bæjarstjórn. Það hefur verið gagnrýnt í einhverjum tilfellum að skýrslur hafi verið stimplaðar sem trúnaðarplögg sem eiga fullt erindi til almennings. Hér er verið að gagnrýna vinnubrögð og starfshætti bæjarstjóra og aftur spurt hvort hann hafi komið með einhverjum hætti að því að skrifa umrædda fréttatilkynningu eða haft áhrif á innihald hennar.</EM><EM>Guðríður Arnardóttir"</EM><EM></EM>Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði fram eftirfarandi bókun:<EM>"Það var mjög eðlilegt í ljósi umræðunnar sem hefur verið um húsnæðismál í Kópavogi, og það að beðið hefur verið þessarar skýrslu of lengi, að þessar upplýsingar væru lagðar fram og skýrslan send fjölmiðlum.</EM><EM>Ármann Kr. Ólafsson"</EM><EM></EM>Guðríður Arnardóttir lagði fram eftirfarandi bókun:<EM>"Það er ekki umdeilt að skýrslan á erindi til almennings. Þetta er spurning um aðferð og vinnubrögð</EM><EM>Guðríður Arnardóttir"</EM><EM></EM>Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði fram eftirfarandi:<EM>"Það er rétt enda hef ég gagnrýnt vinnubrögð minnihlutans mjög í öllum þeirra tillöguflutningi varðandi húsnæðismál í Kópavogi og það kemur á daginn, eins og ég hef alltaf sagt, að eðlilegra hefði verið að bíða eftir niðurstöðum þessarar skýrslu.</EM><EM>Ármann Kr. Ólafsson"</EM><EM></EM>Ómar Stefánsson lagði fram eftirfarandi bókun:<EM>"Hér var um snör og góð vinnubrögð bæjarstjóra að ræða og ber að fagna því þegar upplýsingum er komið svona hratt og örugglega á framfæri við bæjarbúa sem og bæjarfulltrúa.</EM><EM>Ómar Stefánsson"</EM>
05
Bæjarráð - 2709. fundur
Skipan fimm fulltrúa í starfshóp um stöðu húsnæðismarkaðarins, þrír frá meirihluta og tveir frá minnihluta.
Bæjarráð skipar eftirtalda í starfshópinn:Af A-lista: Ármann Kr. Ólafsson, Rannveig Ásgeirsdóttir, Ómar Stefánsson.Af B-lista: Pétur Ólafsson, Ólafur Þór Gunnarsson.Áheyrnarfulltrúi: Hjálmar Hjálmarsson.