Álfhólsvegur 64. Kynning á byggingarleyfisumsókn.
Málsnúmer: 1312013
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1095. fundur
Lögð fram að nýju tillaga Jóns Hrafns Hlöðverssonar, f.h. lóðarhafa að nýbyggingu við Álfhólsveg 64.
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar með 10 atkv. og einni hjásetu.
02
Skipulagsnefnd - 1238. fundur
Lögð fram að nýju tillaga Jóns Hrafns Hlöðverssonar, f.h. lóðarhafa að nýbyggingu við Álfhólsveg 64. Á fundi skipulagsnefndar 18.3.2014 var málinu frestað og skipulags- og byggingardeild falið að taka saman umsögn um framkomnar athugasemdir.$line$$line$Lagt fram að nýju ásamd umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 15.4.2014.
Samþykkt. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
03
Skipulagsnefnd - 1237. fundur
Lögð fram breytt tillaga Jóns Hrafns Hlöðverssonar, f.h. lóðarhafa að nýbyggingu við Álfhólsveg 64. Á fundi skipulagsnefndar 18.2.2014 var málinu frestað og skipulags- og byggingardeild falið að vinna áfram að málinu. Greint frá samráðsfundi sem haldinn var með þeim aðilum sem gerðu athugasemd við kynnta tillögu. Breytt tillaga sem nú er lögð fram gerir ráð fyrir parhúsi á lóðinni sbr. uppdráttum dags. 19.2.2013. $line$$line$Þá lagt fram minnisblað skipulags- og byggingardeildar frá samráðsfundi sem haldinn var þann 6. mars 2014 .
Frestað. Skipulags- og byggingardeild falið að taka saman umsögn um framkomnar athugasemdir.
04
Skipulagsnefnd - 1236. fundur
Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju erindi frá Mansard teiknistofu f.h. lóðarhafa dags. 29.11.2013. Óskað er eftir að rífa einnar hæðar einbýlishús sem stendur á lóðinni og byggja í stað þess þriggja hæða íbúðarhús með fjórum íbúðum. Gert er ráð fyrir fjórum bílastæðum í opinni óupphitaðri bílageymslu á jarðhæð í götukóta. Auk þess verða fjögur bílastæði á vesturhluta lóðarinnar. Húsinu verður skipt í tvo meginhluta með stigagangi á milli þeirra, heildarstærð byggingar er áætluð 510m2 og verður nýtingarhlutfall 0,59 með bílageymslu sbr. uppdráttum dags. 28.11.2013. Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndakynna framlagða breytingartillögu fyrir lóðarhöfum Álfhólsvegar 58, 60, 62, 64, 66, 68, 70, 73, 75, 77, 79a-d, 81 og 83. Kynningu lauk 31. janúar 2014. Athugasemdir bárust. Lagðar fram innsendar athugasemdir.
05
Skipulagsnefnd - 1233. fundur
Lagt fram erindi frá Mansard teiknistofu f.h. lóðarhafa dags. 29.11.2013. Óskað er eftir að rífa einnar hæðar einbýlishús sem stendur á lóðinni og byggja í stað þess þriggja hæða íbúðarhús með fjórum íbúðum. Gert er ráð fyrir fjórum bílastæðum í opinni óupphitaðri bílageymslu á jarðhæð í götukóta. Auk þess verða fjögur bílastæði á vesturhluta lóðarinnar. Húsinu verður skipt í tvo meginhluta með stigagangi á milli þeirra, heildarstærð byggingar er áætluð 510m2 og verður nýtingarhlutfall 0,59 með bílageymslu sbr. uppdráttum dags. 28.11.2013.
Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndakynna framlagða breytingartillögu fyrir lóðarhöfum Álfhólsvegar 58, 60, 62, 64, 66, 68, 70, 73, 75, 77, 79a-d, 81 og 83.