Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Hlíðarvegur 43-45. Kynning á byggingarleyfi.

Málsnúmer: 1312114

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2739. fundur

Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju erindi Kristins Ragnarssonar, arkitekts, dags. 13.3.2014, f.h. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi Hlíðarvegar 43 og 45. Í breytingunni felst að lóðirnar tvær verða sameinaðar og á nýrri lóð verður reist tveggja hæða hús með sex íbúðum. Bílakjallari fyrir 12 bíla verður undir húsinu sbr. uppdráttum dags. 13.3.2014. Á fundi skipulagsnefndar 18.3.2014 var samþykkt með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna tillöguna fyrir lóðarhöfum við Hlíðarveg 37, 39, 41, 44, 46, 48, 49, 50, 52, 54 og 56 ásamt Hrauntungu 60, 62, 64, 66, 77 og 85. Einn nefndarmaður sat hjá. Kynningu lauk 19.6.2014. Athugasemdir og ábendingar bárust á kynningartíma frá íbúum við Hrauntungu 60, 62, 64, 66, 77, 85 Hlíðarvegi 37, 39, 41, 44, 46, 49, 48, 50, 54, 56 sbr. erindi dags. 6. júní 2014; Einari Kristjáni Jónssyni, Hrauntungu 79, sbr. erindi dags. 18. júní 2014; Guðmundi Tómasi Guðmundssyni og Sólbjörtu Aðalsteinsdóttur, Hlíðarvegi 41, sbr. erindi ódags; Hjalta Jóni Pálssyni, Hlíðarvegi 41 sbr. erindi dags. 19. júní 2014 og Óskari Ó. Arasyni og Hilmari Inga Ómarssyni fh. íbúa að Hrauntungu 62 og 64 sbr. erindi dags. 6. júní 2014. Hafnað á grundvelli innsendra athugasemda. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar og hafnar erindinu með fjórum atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi greiðir ekki atkvæði.

02

Skipulagsnefnd - 1242. fundur

Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju erindi Kristins Ragnarssonar, arkitekts, dags. 13.3.2014, f.h. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi Hlíðarvegar 43 og 45. Í breytingunni felst að lóðirnar tvær verða sameinaðar og á nýrri lóð verður reist tveggja hæða hús með sex íbúðum. Bílakjallari fyrir 12 bíla verður undir húsinu sbr. uppdráttum dags. 13.3.2014. Á fundi skipulagsnefndar 18.3.2014 var samþykkt með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna tillöguna fyrir lóðarhöfum við Hlíðarveg 37, 39, 41, 44, 46, 48, 49, 50, 52, 54 og 56 ásamt Hrauntungu 60, 62, 64, 66, 77 og 85. Einn nefndarmaður sat hjá. Kynningu lauk 19.6.2014. Athugasemdir og ábendingar bárust á kynningartíma frá íbúm við Hrauntungu 60, 62, 64, 66, 77, 85 Hlíðarvegi 37, 39, 41, 44, 46, 49, 48, 50, 54, 56 sbr. erindi dags. 6. júní 2014; Einari Kristjáni Jónssyni, Hrauntungi 79, sbr. erindi dags. 18. júní 2014; Guðmundi Tómasi Guðmundssyni og Sólbjörtu Aðalsteinsdóttur, Hlíðarvegi 41, sbr. erindi ódags; Hjalta Jóni Pálssyni, Hlíðarvegi 41 sbr. erindi dags. 19. júní 2014og Óskari Ó. Arasyni og Hilmari Inga Ómarssyni fh. íbúa að Hrauntungu 62 og 64 sbr. erindi dags. 6. júní 2014.

Hafnað á grundvelli innsendra athugasemda. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$$line$Kristinn Dagur Gissurarson situr hjá við afgreiðslu málsins.

03

Skipulagsnefnd - 1237. fundur

Frá byggingarfulltrúa:$line$Lagt fram að nýju erindi Kristins Ragnarssonar, arkitekts, dags. 13.3.2014, f.h. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi Hlíðarvegar 43 og 45. Í breytingunni felst að lóðirnar tvær verða sameinaðar og á nýrri lóð verður reist tveggja hæða hús með sex íbúðum. Bílakjallari fyrir 12 bíla verður undir húsinu sbr. uppdráttum dags. 13.3.2014.

Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna tillöguna fyrir lóðarhöfum við Hlíðarveg 37, 39, 41, 44, 46, 48, 49, 50, 52, 54 og 56 ásamt Hrauntungu 60, 62, 64, 66, 77 og 85. Einn nefndarmaður sat hjá.

04

Skipulagsnefnd - 1233. fundur

Fyrir hönd þinglýsts lóðarhafa er farið fram á heimild að breyta lóðarmörkum innbyrðis og byggja á sérhverri lóð tvílyft þríbýlishús auk kjallara og sameiginlegri bílageymslu fyrir 12 bíla. Gestabílastæði eru fyrirhuguð í göturými. Tillagan gerir ráð fyrir nýtingarhlutfallinu 0.5 fyrir báðar lóðir fyrir utan bílageymslu og b rýma.

Skipulagsnefnd lítur jákvætt á að grenndarkynna framlagða tillögu. Frestað þar til umsókn hefur borist byggingarfulltrúa Kópavogs.