Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Beiðni um endurgreiðslu útlagðs sakarkostnaðar.

Málsnúmer: 1312286

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1094. fundur

Hlé var gert á fundi kl. 16:20.Fundi var fram haldið kl. 16:54.Gunnar Ingi Birgisson vék af fundi undir þessum lið vegna vanhæfis.Ómar Stefánsson lagði fram eftirfarandi tillögu:<EM>"Vegna þeirra hremminga sem Sigrún Ágústa Bragadóttir lenti í kjölfar málaferla og atvinnumissis sem framkvæmdastjóri LSK samþykkir bæjarstjórn að greiða Sigrúnu Ágústu 600.000 kr. styrk.</EM><EM>Ómar Stefánsson"</EM><EM></EM>Pétur Ólafsson lagði til að tillögu Ómars Stefánssonar verði vísað til bæjarráðs til afgreiðslu.Hlé var gert á fundi kl. 17:02. Fundi var fram haldið kl. 17:05.Hlé var gert á fundi kl. 17:07. Fundi var fram haldið kl. 17:08.Pétur Ólafsson dró afgreiðslutillögu sína til baka.Tillaga Ómars Stefánssonar var samþykkt með sex atkvæðum gegn einu. Þrír bæjarfulltrúar greiddu ekki atkvæði.

02

Bæjarráð - 2716. fundur

Frá bæjarlögmanni, dags. 20. janúar, lögð fram umsögn vegna kröfu um endurgreiðslu útlagðs sakarkostnaðar, sektar og lögfræðiinnheimtu.

Bæjarráð hafnar beiðni bréfritara með vísan til umsagnar lögfræðideildar.

03

Bæjarráð - 2713. fundur

Frá fv. framkvæmdastjóra LSK, dags. 12. desember, krafa um endurgreiðslu útlagðs kostnaðar vegna dómsmáls.

Gunnar Ingi Birgisson lagði fram eftirfarandi bókun:<EM>"Undirritaður leggur til að orðið verði við erindi framkvæmdstjóra LSK. Framkvæmdastjórinn stóð sig afar vel í starfi og stuðlaði m.a. að því að tap LSK vegna hrunsins var mjög lítið miðað við aðra lífeyrissjóði. Framkvæmdastjórinn hefur verið leiksoppur örlaganna í þessu máli, þar sem pólitískar ásakanir frá hendi fv. fjármálaráðherra á hendur fv. stjórnarformanni voru í fyrirrúmi.</EM><EM>Allar ákvarðanir fv. stjórnar Lífeyrissjóðsins voru algjörlega löglegar skv. dómi héraðsdóms og atlaga Steingríms J. Sigfússonar var mikil sneypuför og kostaði ríkissjóð og skattborgara þessa lands milljónatugi .</EM><EM>Gunnar Ingi Birgisson"</EM>Bæjarráð vísar erindinu til bæjarlögmanns til umsagnar.