Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Beiðni um styrk til uppgræðslu í beitarhólfinu á Mosfellsheiði, milli Lyklafells og Hengils

Málsnúmer: 1312427

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2719. fundur

Frá bæjarritara, dags. 12. febrúar, umsögn um styrkbeiðni Landgræðslu ríkisins vegna uppgræðsluverkefnis á árinu 2014. Lagt er til að erindinu verði vísað til stjórnar SSH til úrvinnslu.

Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til stjórnar SSH til úrvinnslu.

02

Bæjarráð - 2714. fundur

Frá Landgræðslu ríkisins, dags. 19. desember, þakkað fyrir samstarf á undanförnum árum við uppgræðslu á landinu milli Hengils og Lyklafells og óskað eftir 200.000 kr. styrk til verkefnisins á árinu 2014.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarritara til umsagnar.