Sumarstörf hjá Kópavogsbæ 2014, 18 ára og eldri.
Málsnúmer: 1401024
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2755. fundur
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 15. desember, lögð fram greinargerð garðyrkjustjóra og forstöðumanns Vinnuskólans um sumarstörf hjá Kópavogsbæ sumarið 2014.
Lagt fram.
02
Framkvæmdaráð - 64. fundur
$line$Frá Garðyrkjustjóra
Garðyrkjustjóri kynnti stöðu mála. Ljóst er að allir þeir sem sóttu um, hafa fengið boð um vinnu hjá Kópavogsbæ. Fjöldi umsækjenda rúmast innan fjárhagsáætlunar 2014.
03
Framkvæmdaráð - 63. fundur
Frá Garðyrkjustjóra
Lagt fram minnisblað Garðyrkjustjóra og forstöðumanns Vinnuskóla um sumarráðningar 2014 dags. 7. maí 2014. Garðyrkjustjóri upplýsti um stöðu ráðninga í sumarstörf, fjölda umsækjenda og aldursdreifingu. Varaformaður Ómar Stefánsson vék af fundi við umræðuna.
04
Framkvæmdaráð - 62. fundur
Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar
Garðyrkjustjóri skýrði minnisblað forstöðumanns Vinnuskóla um sumarráðningar 2014, dags. 31. mars 2014. Um þessar mundir er auglýst eftir umsóknum og rennur umsóknarfrestur út 8. apríl. Nú hafa borist umsóknir frá um 480 einstaklingum. Þegar umsóknarfresti lýkur verður gerð frekari grein fyrir fjölda umsókna og aldursdreifingu.
05
Bæjarráð - 2718. fundur
Lögð fram samantekt upplýsinga vegna "Sumarstarfa 18 ára og eldri hjá Kópavogsbæ 2014," dags. 31. janúar 2014. Friðrik Baldursson garðyrkjustjóri og Sigurður Grétar Ólafsson forstöðumaður Vinnuskóla gerðu grein fyrir tillögu að fyrirkomulagi sumarstarfa hjá Kópavogsbæ. Framkvæmdaráð samþykkir vinnureglur og fyrirkomulag varðandi sumarstörf hjá Kópavogsbæ, 18 ára og eldri. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.$line$Ómar Stefánsson vék af fundi við umfjöllun um sumarstörf á menntasviði.
Bæjarráð samþykkir vinnureglur og fyrirkomulag varðandi sumarstörf hjá Kópavogsbæ, 18 ára og eldri. Ómar Stefánsson vék af fundi við umfjöllun um sumarstörf á menntasviði.
06
Framkvæmdaráð - 60. fundur
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs
Lögð fram samantekt upplýsinga vegna "Sumarstarfa 18 ára og eldri hjá Kópavogsbæ 2014," dags. 31. janúar 2014. Friðrik Baldursson garðyrkjustjóri og Sigurður Grétar Ólafsson forstöðumaður Vinnuskóla gerðu grein fyrir tillögu að fyrirkomulagi sumarstarfa hjá Kópavogsbæ. Framkvæmdaráð samþykkir vinnureglur og fyrirkomulag varðandi sumarstörf hjá Kópavogsbæ, 18 ára og eldri. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.Ómar Stefánsson vék af fundi við umfjöllun um sumarstörf á menntasviði.