Skólagarðar Kópavogs 2014.
Málsnúmer: 1401025
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2718. fundur
Sviðsstjóri umhverfissviðs lagði fram minnisblað garðyrkjustjóra um "Skólagarða Kópavogs 2014," dags. 27. janúar 2014. Friðrik Baldursson garðyrkjustjóri og Sigurður Grétar Ólafsson forstöðumaður Vinnuskóla gerðu grein fyrir fyrirkomulagi skólagarða Kópavogs 2014.$line$Lagt er til að fyrirkomulag skólagarða verði með sama sniði árið 2014 og var á síðasta ári, nema að skólagarðar sem voru við Baugakór, færast að Arnarnesvegi. Þátttökugjald verði óbreytt frá síðasta ári, eða kr. 4.200.-. Framkvæmdaráð samþykkir tillögu að fyrirkomulagi og þátttökugjaldi. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir tillögu að fyrirkomulagi og þátttökugjaldi.
02
Framkvæmdaráð - 60. fundur
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs
Sviðsstjóri umhverfissviðs lagði fram minnisblað garðyrkjustjóra um "Skólagarða Kópavogs 2014," dags. 27. janúar 2014. Friðrik Baldursson garðyrkjustjóri og Sigurður Grétar Ólafsson forstöðumaður Vinnuskóla gerðu grein fyrir fyrirkomulagi skólagarða Kópavogs 2014.Lagt er til að fyrirkomulag skólagarða verði með sama sniði árið 2014 og var á síðasta ári, nema að skólagarðar sem voru við Baugakór, færast að Arnarnesvegi. Þátttökugjald verði óbreytt frá síðasta ári, eða kr. 4.200.- Framkvæmdaráð samþykkir tillögu að fyrirkomulagi og þátttökugjaldi. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.