Hlíðarhjalli 16. Kynning á byggingarleyfi
Málsnúmer: 14011091
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1095. fundur
Lagt fram erindi Random-ark ehf. dags. 23.1.2014 f.h. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi Hlíðarhjalla 16. Í breytingunni felst að byggja 27m2 sólskála á suðurhlið hússins, svalir verða á þaki sólskálans.
Bæjarstjórn samþykkir einróma afgreiðslu skipulagsnefndar.
02
Skipulagsnefnd - 1238. fundur
Frá byggingarfulltrúa:$line$Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju erindi Random-ark ehf. dags. 23.1.2014 f.h. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi Hlíðarhjalla 16. Í breytingunni felst að byggja 27m2 sólskála á suðurhlið hússins, svalir verða á þaki sólskálans. Heildarbyggingarmagn hækkar úr 270,5m2 í 297,5m2 og nýtingarhlutfall hækkar úr 0,42 í 0,47 sbr. uppdráttum dags. 23.1.2014. Á fundi skipulagsnefndar 18.2.2014 var samþykkt með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna tillöguna fyrir lóðarhöfum Hlíðarhjalla 6, 8, 10, 12, 14 og 18. Kynningu lauk 28.3.2014. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust og fyrir liggur skriflegt samþykki lóðarhafa Hlíðarhjalla 18.
Samþykkt. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
03
Skipulagsnefnd - 1236. fundur
Frá byggingarfulltrúa:$line$Lagt fram erindi Random-ark ehf. dags. 23.1.2014 f.h. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi Hlíðarhjalla 16. Í breytingunni felst að byggja 27m2 sólskála á suðurhlið hússins, svalir verða á þaki sólskálans. Heildarbyggingarmagn hækkar úr 270,5m2 í 297,5m2 og nýtingarhlutfall hækkar úr 0,42 í 0,47 sbr. uppdráttum dags. 23.1.2014.