Kópavogsgerði 1-3. Breytt deiliskipulag.
Málsnúmer: 1401539
Ferill máls
01
Skipulagsnefnd - 1238. fundur
Lagt fram bréf frá Birnu Bjarnadóttur, f.h. stjórnar húsfélagsins Kópavogstúni 6-8, dags. 3.4.2014 vegna framkvæmdar grenndarkynningar vegna Kópavogsgerðis 1-3.
Á fundi skipulagsnefndar 18. apríl 2014 þegar mál nr. 6 á 1237. fundi nefndarinnar var afgreitt telur skipulagsnefnd að formsatriðum skipulagslaga hafi verið fylgt m.a. hvað varðar 2. mgr. 44. gr. laganna um grenndarkynningar. Þar segir m.a: "Grenndarkynning felst í því að skipulagsnefnd kynnir nágrönnum sem taldir eru geta átt hagsmuna að gæta leyfisumsókn eða tillögu að breytingu á skipulagsáætlunum.....". Í 3. mgr. 44. gr. segir jafnframt: "Skipulagsnefnd er heimilt að stytta grenndarkynningu ef þeir sem hagsmuna eiga að gæta sbr. 1. mgr., hafa lýst skriflega yfir með áritun sinni á kynningargögn áður en fjórar vikur eru liðnar að þeir geri ekki athugasemdir við skipulagstillöguna.....".Ofangreint samþykki lá fyrir við afgreiðslu málsins auk þess sem það var mat nefndarinnar að þær útlitsbreytingar sem gerðar voru á fyrirhuguðu húsi hefðu ekki áhrif á lóðarhafa hússins nr. 8 við Kópavogstún þar sem þær eiga fyrst og fremst við suður hlið hússins við Kópavogsberði 1-3 þ.e þá hlið hússins sem snýr frá íbúum í Kópavogstúni 8. Skipulagsnefnd hefur auk þess yfirfarið fjölda íbúa á íbúð í þeim húsum sem þegar eru byggð við Kópavogstún. Niðurstaðan er sú að mun færri búa í húsunum en áætlað var eða um 1,5 íbúar á íbúð í stað 3,0 íbúa á íbúð þ.e. helmingi færri íbúar er gert var ráð fyrir í skipulaginu. Sterkar líkur benda til þess að svo verði einnig við Kópavogsgerði 1-3 og 5-7. Þessi staðreynd hefur þau áhrif að mun minni umferð er í hverfinu en áætlaðar voru, íbúum hverfisins til hagsbóta.
02
Bæjarstjórn - 1093. fundur
Lagt fram að nýju erindi Valdimars Harðarsonar, arkitekts, f.h. lóðarhafa dags. 7.1.2014, að breyttu deiliskipulagi Kópavogsgerðis 1-3. Í breytingunni felst að íbúðum er fjölgað um fjórar á jarðhæð hússins, byggingarreitur stækkar á suðvestur hlið hússins og lítillega á norðaustur horni þess, heildarbyggingarmagn eykst úr 4405m2 í 4601m2 og nýtingarhlutfall hækkar úr 1,52 í 1,6. Samkvæmt gildandi deiliskipulagi er hámarksnýtingarhlutfall lóðarinnar 1,8. Bílastæði á lóð verða 46 sbr. uppdrætti í mkv. 1:200 dags. 7.1.2014. Á fundi skipulagsnefndar 18.2.2014 var samþykkt með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna tillöguna fyrir lóðarhöfum Kópavogstúns 10-12; Kópavogsgerðis 5-7 ásamt Líknardeild Landspítalans. Kynningartími er til 4.3.2014.$line$Lagt fram að nýju ásamt samþykki lóðarhafa sem grenndarkynning var send til dags. 6.3.2014.$line$Skipulagsnefnd samþykkir framlagt erindi með tilvísan í 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$Bæjarráð vísaði málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir erindið með átta atkvæðum. Þrír bæjarfulltrúar greiddu ekki atkvæði.
03
Bæjarráð - 2724. fundur
Lagt fram að nýju erindi Valdimars Harðarsonar, arkitekts, f.h. lóðarhafa dags. 7.1.2014, að breyttu deiliskipulagi Kópavogsgerðis 1-3. Í breytingunni felst að íbúðum er fjölgað um fjórar á jarðhæð hússins, byggingarreitur stækkar á suðvestur hlið hússins og lítillega á norðaustur horni þess, heildarbyggingarmagn eykst úr 4405m2 í 4601m2 og nýtingarhlutfall hækkar úr 1,52 í 1,6. Samkvæmt gildandi deiliskipulagi er hámarksnýtingarhlutfall lóðarinnar 1,8. Bílastæði á lóð verða 46 sbr. uppdrætti í mkv. 1:200 dags. 7.1.2014. Á fundi skipulagsnefndar 18.2.2014 var samþykkt með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna tillöguna fyrir lóðarhöfum Kópavogstúns 10-12; Kópavogsgerðis 5-7 ásamt Líknardeild Landspítalans. Kynningartími er til 4.3.2014.$line$Lagt fram að nýju ásamt samþykki lóðarhafa sem grenndarkynning var send til dags. 6.3.2014.$line$Skipulagsnefnd samþykkir framlagt erindi með tilvísan í 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
04
Skipulagsnefnd - 1237. fundur
Lagt fram að nýju erindi Valdimars Harðarsonar, arkitekts, f.h. lóðarhafa dags. 7.1.2014, að breyttu deiliskipulagi Kópavogsgerðis 1-3. Í breytingunni felst að íbúðum er fjölgað um fjórar á jarðhæð hússins, byggingarreitur stækkar á suðvestur hlið hússins og lítillega á norðaustur horni þess, heildarbyggingarmagn eykst úr 4405m2 í 4601m2 og nýtingarhlutfall hækkar úr 1,52 í 1,6. Samkvæmt gildandi deiliskipulagi er hámarksnýtingarhlutfall lóðarinnar 1,8. Bílastæði á lóð verða 46 sbr. uppdrætti í mkv. 1:200 dags. 7.1.2014. Á fundi skipulagsnefndar 18.2.2014 var samþykkt með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna tillöguna fyrir lóðarhöfum Kópavogstúns 10-12; Kópavogsgerðis 5-7 ásamt Líknardeild Landspítalans. Kynningartími er til 4.4.2014.$line$$line$Lagt fram að nýju ásamt samþykki lóðarhafa sem grenndarkynning var send til dags. 6.3.2014.
Skipulagsnefnd samþykkir framlagt erindi með tilvísan í 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
05
Skipulagsnefnd - 1236. fundur
Lagt fram að nýju erindi Valdimars Harðarsonar, arkitekts, f.h. lóðarhafa dags. 7.1.2014, að breyttu deiliskipulagi Kópavogsgerðis 1-3. Í breytingunni felst að íbúðum er fjölgað um fjórar á jarðhæð hússins, byggingarreitur stækkar á suðvestur hlið hússins og lítillega á norðaustur horni þess, heildarbyggingarmagn eykst úr 4405m2 í 4601m2 og nýtingarhlutfall hækkar úr 1,52 í 1,6. Samkvæmt gildandi deiliskipulagi er hámarksnýtingarhlutfall lóðarinnar 1,8. Bílastæði á lóð verða 46 sbr. uppdrætti í mkv. 1:200 dags. 7.1.2014. Á fundi skipulagsnefndar 21.1.2014 var erindinu frestað.
06
Skipulagsnefnd - 1235. fundur
Lagt fram erindi Valdimars Harðarssonar, arkitekts, f.h. lóðarhafa dags. 7.1.2014, að breyttu deiliskipulagi Kópavogsgerðis 1-3. Í breytingunni felst að íbúðum er fjölgað um fjórar á jarðhæð hússins, byggingarreitur stækkar á suðvestur hlið hússins og lítillega á norðaustur horni þess, heildarbyggingarmagn eykst úr 4405m2 í 4601m2 og nýtingarhlutfall hækkar úr 1,52 í 1,6. Samkvæmt gildandi deiliskipulagi er hámarksnýtingarhlutfall lóðarinnar 1,8. Bílastæði á lóð verða 46 sbr. uppdrætti í mkv. 1:200 dags. 7.1.2014
Lagt fram og kynnt. Afgreiðslu frestað.