Kópavogsbraut - Borgarholtsbraut. Framkvæmdaleyfi.
Málsnúmer: 1401691
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1089. fundur
Óskað er eftir, í samræmi við reglugerð nr. 772/2012, og gildandi deiliskipulag birt í B-deild Stjórnartíðinda 7. mars 2006, að skipulagsnefnd samþykki framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmdinni "Kópavogsbraut-Borgarholtsbraut nýr rampur og torg". Verkkaupar eru Kópavogsbær, Orkuveita Reykjavíkur, Míla ehf. og Gagnaveita Reykjavíkur. Í verkinu felst að í stað einstefnurampa milli Borgarholtsbrautar og Kópavogsbrautar er gerð vegtenging með tvístefnu á milli Kópavogsbrautar og Borgarholtsbrautar með hringtorgi á Kópavogsbraut og frá því rampi sem tengist Hafnarfjarðarvegi ásamt því að veitustofnanir leggja lagnir sínar í nýja vegtengingu. Samþykkt. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir með átta atkvæðum að veita umbeðið framkvæmdaleyfi. Þrír bæjarfulltrúar sátu hjá.
02
Bæjarráð - 2716. fundur
Óskað er eftir, í samræmi við reglugerð nr. 772/2012, og gildandi deiliskipulag birt í B-deild Stjórnartíðinda 7. mars 2006, að skipulagsnefnd samþykki framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmdinni "Kópavogsbraut-Borgarholtsbraut nýr rampur og torg". Verkkaupar eru Kópavogsbær, Orkuveita Reykjavíkur, Míla ehf. og Gagnaveita Reykjavíkur.$line$$line$Í verkinu felst að í stað einstefnurampa milli Borgarholtsbrautar og Kópavogsbrautar er gerð vegtenging með tvístefnu á milli Kópavogsbrautar og Borgarholtsbrautar með hringtorgi á Kópavogsbraut og frá því rampi sem tengist Hafnarfjarðarvegi ásamt því að veitustofnanir leggja lagnir sínar í nýja vegtengingu.$line$$line$Samþykkt. $line$$line$Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$
Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
03
Skipulagsnefnd - 1235. fundur
Óskað er eftir, í samræmi við reglugerð nr. 772/2012, og gildandi deiliskipulag birt í B-deild Stjórnartíðinda 7. mars 2006, að Skipulagsnefnd samþykki framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmdinni "Kópavogsbraut" Borgarholtsbraut nýr rampur og torg" verkkaupar eru Kópavogsbær, Orkuveita Reykjavíkur, Míla ehf. og Gagnaveita Reykjavíkur.$line$Í verkinu fellst að í stað einstefnurampa milli Borgarholtsbrautar og Kópavogsbrautar er gerð vegtengingu með tvístefnu á milli Kópavogsbrautar og Borgarholtsbrautar með hringtorgi á Kópavogsbraut og frá því rampi sem tengist Hafnarfjarðarvegi ásamt því að veitustofnanir leggja lagnir sínar í nýja vegtengingu.
Samþykkt. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.