Til baka í fundargerðir
FEBK óskar eftir að verða tillögu- og umsagnaraðili um málefni aldraðra sem fjallað er um í bæjarstjórn
Málsnúmer: 1401848
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2716. fundur
Lagt fram erindi félags eldri borgara í Kópavogi, dags. 20. janúar, þar sem félagið óskar eftir að verða tillögu- og umsagnaraðili um málefni aldraðra sem fjallað er um í bæjarstjórn. Einnig að félagið fái að koma að borði varðandi viðræður um rekstur Hrafnistu á Boðanum.
Bæjarráð samþykkir að leitað verði sjónarmiða FEBK við endurskoðun þjónustu málefna eldri borgara á Boðanum.Guðríður Arnardóttir bókar:Undirrituð fagnar þessu frumkvæði félags eldri borgara í Kópavogi.