Naustavör 2-18. Heimild til framsals
Málsnúmer: 1402168
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2722. fundur
Frá fjármálastjóra, dags. 5. febrúar, umsögn um beiðni frá Þróunarfélaginu BRB ehf. sem afsalsgjafa og Byggingarfélagi Gylfa og Gunnars ehf. sem afsalshafa um framsal á lóðinni Naustavör 2-18, þar sem lagt er til að erindið verði samþykkt. Málið var lagt fyrir á fundi bæjarráðs þann 6/2 sl. og frestað.
Bæjarráð samþykkir erindið og felur bæjarstjóra og sviðsstjóra umhverfissviðs að afla upplýsinga um breytingar á framkvæmdaáætlun á svæðinu. Sviðsstjóri umhverfissviðs og fjármála- og hagsýslustjóri sátu fundinn undir þessum lið.
02
Bæjarráð - 2718. fundur
Frá fjármálastjóra, dags. 5. febrúar, umsögn um beiðni frá Þróunarfélaginu BRB ehf. sem afsalsgjafa og Byggingarfélagi Gylfa og Gunnars ehf. sem afsalshafa um framsal á lóðinni Naustavör 2-18, þar sem lagt er til að erindið verði samþykkt.
Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins. Fjármála- og hagsýslustjóri sat fundinn undir þessum lið.