Sveitarstjórnarkosningar 2014
Málsnúmer: 1402235
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1099. fundur
Formaður yfirkjörstjórnar, Snorri Tómasson, tók til máls og flutti skýrslu kjörstjórnar, skv. 2. mgr. 96. gr. laga um kosningar til sveitarstjórnar nr. 5/1998.$line$ Á kjörskrá í kosningunum voru 23.606. Alls kusu á kjörstað 12.590 og utankjörfundaratkvæði voru 1.769. Kosningaþátttaka var 60,8%.$line$$line$Atkvæði féllu þannig: $line$$line$B listi Framsóknarflokks 1.610 atkvæði eða 11,76% og 1 fulltrúa.$line$D listi Sjálfstæðisflokks 5.388 atkvæði eða 39,34% og 5 fulltrúa.$line$S listi Samfylkingarinnar 2.203 atkvæði eða 16,08% og 2 fulltrúa.$line$T listi Dögunar og umbótasinna 113 atkvæði eða 0,83% og engan fulltrúa.$line$V listi Vinstri græns og félagshyggjufólks 1.310 atkvæði eða 9,56% og 1 fulltrúa.$line$X listi Næst besta flokksins 435 atkvæði eða 3,18% og engan fulltrúa.$line$Þ listi Pírata 554 atkvæði eða 4,04% og engan fulltrúa.$line$Æ listi Bjartrar framtíðar 2.083 atkvæði eða 15,21% og 2 fulltrúa.$line$Auðir seðlar 601$line$Ógildir seðlar 62$line$Gildir seðlar 13.696$line$Samtals seðlar 14.359$line$$line$Eftirtaldir hlutu kosningu sem aðal- og varafulltrúar í bæjarstjórn Kópavogs:$line$Kjörnir aðalfulltrúar:$line$Birkir Jón Jónsson B-listi Framsóknarflokks$line$Ármann Kr. Ólafsson D-listi Sjálfstæðisflokks$line$Margrét Friðriksdóttir D-listi Sjálfstæðisflokks$line$Karen E. Halldórsdóttir D-listi Sjálfstæðisflokks$line$Hjördís Ýr Johnson D-listi Sjálfstæðisflokks$line$Guðmundur Geirdal D-listi Sjálfstæðisflokks$line$Pétur Hrafn Sigurðsson S-listi Samfylkingar$line$Ása Richardsdóttir S-listi Samfylkingar$line$Ólafur Þór Gunnarsson V-listi Vinstri græns og félagshyggjufólks$line$Theódóra S. Þorsteinsdóttir Æ-listi Bjartrar framtíðar$line$Sverrir Óskarsson Æ-listi Bjartrar framtíðar$line$Kjörnir varafulltrúar:$line$Sigurjón Jónsson B-listi Framsóknarflokks$line$Margrét Björnsdóttir D-listi Sjálfstæðisflokks$line$Jón Finnbogason D-listi Sjálfstæðisflokks$line$Andri Steinn Hilmarsson D-listi Sjálfstæðisflokks$line$Anný Berglind Thorstensen D-listi Sjálfstæðisflokks$line$Gunnlaugur Snær Ólafsson D-listi Sjálfstæðisflokks$line$Unnur Tryggvadóttir Flóvenz S-listi Samfylkingar$line$Hannes Friðbjarnarson S-listi Samfylkingar$line$Margrét Júlía Rafnsdóttir V-listi Vinstri græns og félagshyggjufólks$line$Hreiðar Oddsson Æ-listi Bjartrar framtíðar$line$Ragnhildur Reynisdóttir Æ-listi Bjartrar framtíðar$line$
Lagt fram.
02
Bæjarráð - 2731. fundur
Á fundi bæjarstjórnar þann 13. maí var samþykkt að fela bæjarráði einróma að fara með umboð sitt varðandi kjörskrá og önnur mál er upp kunna að koma vegna sveitarstjórnarkosninga þann 31. maí 2014. $line$
Bæjarráð Kópavogs verður reiðubúið að koma saman á kjördag til afgreiðslu á breytingum á kjörskrá komi til þess.
03
Bæjarstjórn - 1096. fundur
Frá formanni kjörstjórnar, dags. 7. maí, tillaga vegna sveitarstjórnarkosninga 31. maí nk:$line$Tveir kjörstaðir í Kópavogi:$line$Smárinn með 14 kjördeildir$line$Kórinn með 6 kjördeildir.$line$Einnig verða ráðnir 16 manns til að vinna við talningu atkvæða. Lögð fram tillaga að bókun bæjarstjórnar vegna kosninga til sveitarstjórnar þann 31. maí nk.:$line$$line$Bæjarstjórn samþykkir að fela bæjarstjóra að ganga frá og undirrita kjörskrá í samræmi við lög og reglur þar um. Jafnframt felur bæjarstjórn bæjarráði að fara með umboð sitt varðandi kjörskrá og önnur mál er upp kunna að koma vegna sveitarstjórnarkosninga þann 31. maí 2014. $line$
Bæjarstjórn samþykkir einróma tillögu um kjörstaði. Einnig samþykkir bæjarstjórn einróma að fela bæjarstjóra að ganga frá og undirrita kjörskrá í samræmi við lög og reglur þar um. Jafnframt felur bæjarstjórn bæjarráði einróma að fara með umboð sitt varðandi kjörskrá og önnur mál er upp kunna að koma vegna sveitarstjórnarkosninga þann 31. maí 2014.
04
Bæjarráð - 2730. fundur
Frá formanni kjörstjórnar, dags. 7. maí, tillaga vegna sveitarstjórnarkosninga 31. maí nk:$line$Tveir kjörstaðir í Kópavogi:$line$Smárinn með 14 kjördeildir$line$Kórinn með 6 kjördeildir.$line$Einnig verða ráðnir 16 manns til að vinna við talningu atkvæða. $line$Einnig lögð fram tillaga að bókun bæjarstjórnar vegna kosninga til sveitarstjórnar þann 31. maí nk.:$line$$line$Bæjarstjórn samþykkir að fela bæjarstjóra að ganga frá og undirrita kjörskrá í samræmi við lög og reglur þar um. Jafnframt felur bæjarstjórn bæjarráði að fara með umboð sitt varðandi kjörskrá og önnur mál er upp kunna að koma vegna sveitarstjórnarkosninga þann 31. maí 2014. $line$
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.