Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Húsnæðismál

Málsnúmer: 1402281

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2741. fundur

Bókun Ólafs Þórs Gunnarssonar:$line$"Ég hlakka til að mæta á fyrsta fund í starfshópi um húsnæðismál."

02

Bæjarráð - 2737. fundur

Frá Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga, dags. 1. júlí, svar við fyrirspurn varðandi aðlögunaráætlun Kópavogsbæjar og fyrirhugaða fjárfestingu í félagslegu húsnæði og byggingu leiguíbúða. Almennt séð er það afstaða nefndarinnar að sveitarfélögum beri að halda áætlaðan aðlögunartíma, samþykktan af sveitarstjórn og ekki sé heimild í lögum til að víkja frá því ákvæði.

Lagt fram.

03

Bæjarstjórn - 1095. fundur

Lögð fram að nýju tillaga sem frestað var á síðasta fundi bæjarstjórnar:$line$Hafsteinn Karlsson leggur fram eftirfarandi tillögu:$line$"Bæjarstjórn samþykkir að kaupa á þessu ári félagslegar leiguíbúðir til viðbótar við þær sem samþykktar hafa verið í fjárhagsáætlun. Fjöldi íbúðanna takmarkast við það lausafé sem kemur úr lóðaúthlutunum á árinu sem ekki kalla á mikil útgjöld.$line$$line$Jafnframt samþykkir bæjarstjórn að hefja undirbúning að byggingu tveggja fjölbýlishúsa með leiguíbúðum á almennum markaði í samstarfi við leigufélög sem ekki hafa hagnaðarsjónarmið að leiðarljósi. Bæjarstjórn felur bæjarstjóra að hefja nú þegar viðræður við slík félög og kanna möguleika á einhverskonar samstarfi. Einnig felur bæjarstjórn bæjarstjóra að ræða við$line$lífeyrissjóði um að koma að fjármögnun. Þá felur bæjarstjórn framkvæmdasviði að kanna alla möguleika á heppilegri staðsetningu almennra leiguíbúða og huga sérstaklega að möguleikum á að koma a.m.k. annarri þeirra fyrir í nágrenni Hamraborgar.$line$Bæjarstjóri og framkvæmdasvið skili bæjarstjórn niðurstöðum í byrjun maí."

Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði til að bæjarstjórn leiti álits Eftirlitsnefndar um fjármál sveitarfélaga um framlagða tillögu.Hlé var gert á fundi kl. 23:17. Fundi var fram haldið kl. 23:22.Gunnar Ingi Birgisson lagði til að fundi verði frestað.Bæjarstjórn samþykkir kl. 23:58 með níu atkvæðum gegn einu að fresta fundi til kl. 16:30 miðvikudaginn 23. apríl. Einn bæjarfulltrúi greiddi ekki atkvæði.Miðvikudaginn 23. apríl kl. 16:30 er fundi fram haldið. Skipan fundarmanna hefur breyst með þeim hætti að í stað Péturs Ólafssonar er Elfur Logadóttir og í stað Hreiðars Oddssonar er Una Björg Einarsdóttir og í stað Gunnars Inga Birgissonar er Karen Halldórsdóttir mætt.Fundarhlé kl. 16:40, fundi fram haldið kl. 16:41. Fundarhlé kl. 16:41, fundi fram haldið kl. 16:42.Guðríður Arnardóttir óskar eftir nafnakalli um afgreiðslu tillögu Ármanns Kr. Ólafssonar. Hjálmar Hjálmarsson segir neiKaren Halldórsdóttir segir jáÓlafur Þór Gunnarsson gerir grein fyrir atkvæði sínu og situr hjáÓmar Stefánsson gerir grein fyrir atkvæði sínu og segir jáUna Björg Einarsdóttir segir jáAðalsteinn Jónsson segir jáÁrmann Kr. Ólafsson segir jáElfur Logadóttir segir neiGuðríður Arnardóttir gerir grein fyrir atkvæði sínu og segir nei og leggur fram bókun:"Það liggur fyrir að áður en frekari fjárútlát eiga sér stað þarf að leggja fram viðauka. Enn einu sinni er bæjarstjóri að tefja málið."Hafsteinn Karlsson segir neiMargrét Björnsdóttir segir jáTillaga Ármanns Kr. Ólafssonar er samþykkt með 6 atkv. gegn 4 atkv. en einn bæjarfulltrúi greiðir ekki atkvæði. Bókun bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar:
"Frá því í haust hefur bæjarstjórn Kópavogs rætt um aðgerðir vegna neyðarástands í húsnæðismálum á höfuðborgarsvæðinu. Tillögur hafa verið lagðar fram um fjölgun félagslegra leiguíbúða og aðgerðir til að greiða fyrir byggingu hagkvæmra íbúða á almennum leigumarkaði. Markmiðið hefur verið að stíga lítið skref í þá átt að vinna á löngum biðlista eftir félagslegum íbúðum í bænum og stuðla að framboði á hagkvæmum og varanlegum leiguíbúðum.

Þrátt fyrir skýran vilja meirihluta bæjarfulltrúa í þessum efnum hefur bæjarstjóri sem er framkvæmdastjóri bæjarins haft samþykktir bæjarstjórnar að engu. Í stað þess að vinna að málinu í samræmi við ákvarðanir bæjarstjórnar hefur hann barist gegn þessum hugmyndum af miklum krafti. Hann hefur enda margsinnis lýst þeim skoðunum sínum að hann telji enga þörf á að mæta óskum fólks um hagkvæmar leiguíbúðir, heldur eigi fólk að kaupa sér íbúð til að búa í.

Bæjarstjóri hefur með stuðningi oddvita Framsóknarflokks og Lista Kópavogsbúa, sem nú er orðin Björt framtíð, tafið framgang þessa máls með ýmsum hætti. M.a. með því að framkvæma ekki samþykktir bæjarstjórnar eins og áður er sagt. Nú síðast með því að halda mikilvægri skýrslu frá bæjarfulltrúum um tíma meðan hann var að kynna sér hana. Þann tíma notaði hann til að semja fréttatilkynningu upp úr henni, þóknanlega hans málstað. Hann sendi hana og skýrsluna á fjölmiðla á sama tíma og hann sendi öðrum bæjarfulltrúum skýrsluna. Þetta er þeim mun alvarlegra að þennan sama dag var bæjarstjórnarfundur þar sem húsnæðismál voru á dagskrá. Skýrslan sem hann hafði haft undir höndum í tæpan sólarhring að hans sögn, var send bæjarfulltrúum svo seint að þeir höfðu ekki tíma til að lesa hana fyrir fundinn. Hann sat því einn að þeim upplýsingum sem í henni voru á fundinum.
Sem framkvæmdarstjóra bæjarins bar bæjarstjóra að hefja þá þegar vinnu við að framfylgja ákvörðun bæjarstjórnar m.a. með því að:

* Leggja fram viðauka við fjárhagsáætlun og fá þannig heimild til viðbótar fjárútláta
* Hafa samband við eftirlitsnefnd um fjármál sveitarfélaga og tilkynna um ákvörðun bæjarstjórnar - að viðbótar fjárútlát yrðu fjármögnuð með tekjum af lóðaúthlutunum
* Að setja starfsmenn bæjarins í vinnu við nánari útfærslu tillögu bæjarstjórnar m.a. að finna hentuga lóð
* Að tala verkefnið upp og nálgast það af jákvæðni og standa með ákvörðun bæjarstjórnar

Það er bæjarstjórn sem fer með æðsta vald í málefnum bæjarins og þeim sem tekur að sér framkvæmdastjórn sveitarfélagsins ber að fylgja samþykktum hennar, jafnvel þó að hann sé þeim ekki sammála. Það hefur bæjarstjóri ekki gert í þessu máli og hefur því brugðist í því starfi sem hann tók að sér fyrir bæjarstjórn Kópavogs." <?xml:namespace prefix = "o" ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /><o:p></o:p>

<o:p></o:p>Bókun Hjálmars Hjálmarssonar:

"Ég tek undir bókun bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar."

Fundarhlé kl. 17:07, fundi fram haldið kl. 17:23.

Bókun Aðalsteins Jónssonar, Margrétar Björnsdóttur, Ómars Stefánssonar og Ármanns Kr. Ólafssonar:<o:p></o:p>

"Það er útilokað að ætlast til þess að bæjarstjóri framfylgi tillögu sem skortir lagaheimild en lögmaður Sambands íslenskra sveitarfélaga sagði"þetta liggur að mínu viti tiltölulega ljóst fyrir í lögunum að fjárhagsáætlun er bindandi og því er ekki heimilt að ákveða ný útgjöld úr bæjarsjóði nema viðauki sé samþykktur áður, þar sem kveðið er á um hvernig útgöldum skuli mætt. Mér sýnist að því leyti sem ég hef skoðað málið að ljóst sé að enginn viðauki hafi verið lagður fram" Þá segir enn fremur "ég sé ekki að það sé hægt að samþykkja útgjöld úr bæjarsjóði nema að undangengnum viðauka í þessu máli".
Bæjarfulltrúar hafa verið sammála því að greiða niður skuldir bæjarins og því er framfylgt í gildandi fjárhagsáætlun sem og í þeirri síðustu og þess vegna gátum við greitt niður skuldir bæjarins um tvo milljarða eins og fram kemur í ársreikningi fyrir árið 2013.
Umrædd skýrsla var send í tölvupósti að loknum vinnudegi til bæjarstjóra. Næsta dag var hún send á bæjarfulltrúa og í ljósi opinberrar umfjöllunar um húsnæðismál í Kópavogi var rétt að senda hana á fjölmiðla í kjölfarið."<o:p></o:p>

Bókun Unu Bjargar Einarsdóttur:

"Með vísan í bókun Samfylkingarinnar þar sem kemur fram að Listi Kópavogsbúa sé orðinn að Bjartri framtíð vil ég taka fram að Listi Kópavogsbúa situr í bæjarstjórn og mun gera út kjörtímabilið. Björt framtíð kemur því ekki að þessu máli."

04

Bæjarstjórn - 1094. fundur

Hafsteinn Karlsson leggur fram eftirfarandi tillögu:$line$"Bæjarstjórn samþykkir að kaupa á þessu ári félagslegar leiguíbúðir til viðbótar við þær sem samþykktar hafa verið í fjárhagsáætlun. Fjöldi íbúðanna takmarkast við það lausafé sem kemur úr lóðaúthlutunum á árinu sem ekki kalla á mikil útgjöld.$line$$line$Jafnframt samþykkir bæjarstjórn að hefja undirbúning að byggingu tveggja fjölbýlishúsa með leiguíbúðum á almennum markaði í samstarfi við leigufélög sem ekki hafa hagnaðarsjónarmið að leiðarljósi. Bæjarstjórn felur bæjarstjóra að hefja nú þegar viðræður við slík félög og kanna möguleika á einhverskonar samstarfi. Einnig felur bæjarstjórn bæjarstjóra að ræða við$line$lífeyrissjóði um að koma að fjármögnun. Þá felur bæjarstjórn framkvæmdasviði að kanna alla möguleika á heppilegri staðsetningu almennra leiguíbúða og huga sérstaklega að möguleikum á að koma a.m.k. annarri þeirra fyrir í nágrenni Hamraborgar.$line$Bæjarstjóri og framkvæmdasvið skili bæjarstjórn niðurstöðum í byrjun maí."

Hafsteinn Karlsson lagði til að umræðu um tillöguna verði frestað til næsta fundar bæjarstjórnar. Var það samþykkt einróma.

05

Bæjarráð - 2719. fundur

Frá bæjarstjóra, dags. 11. febrúar, umsögn um viðauka við fjárhagsáætlun.

Lagt fram.

06

Bæjarstjórn - 1090. fundur

Hlé var gert á fundi kl. 17:34. Fundi var fram haldið kl. 17:35.