Til baka í fundargerðir
Beiðni um sundferð fyrir þátttakendur á Íslandsmóti iðn- og verkgreina í mars 2014.
Málsnúmer: 1402320
Ferill máls
01
Íþróttaráð - 32. fundur
Lagt fram erindi dags. 4. febrúar sl., frá Mótsstjórn Íslandsmóts iðn- og verkgreina um hvort þátttakendur og umsjónaraðilar keppnisgreina geti fengið frítt í sund í sundlaugum bæjarins mótsdagana 6.-8. mars en mótið verður haldið í Kórnum.
Íþróttaráð getur ekki orðið óskum mótsstjórnar um gjaldfrjálsan aðgang að sundlaugum bæjarins. Ráðið vill hins vegar benda stjórninni á þann möguleika að leita samninga við íþróttadeildina um afslátt á grundvelli þess fjölda sem tekur þátt í Íslandsmóti iðn- og verkgreina 2014.