Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Grænatún 20. Byggingarleyfi. Grenndarkynning.

Málsnúmer: 1402523

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2740. fundur

Lagt fram að nýju erindi Einars. V. Tryggvasonar f.h. lóðarhafa varðandi nýbyggingu við Grænatún 20. Á fundi skipulagsnefndar 20.5.2014 var lögð fram ný og breytt tillaga skipulags- og byggingardeildar dags. 20.5.2014 þar sem dregið er úr byggingarmagni og byggingarreitir færðir til á lóð miðað við fyrri tillögu sbr. uppdráttum dags. 20.5.2014 í mkv. 1:500 ásamt skýringarmyndum. Skipulagsnefnd lagði til við bæjarráð og bæjarstjórn að samþykkja tillögu dags. 20. maí 2014. Á fundi bæjarráðs 5.6.2014 var erindinu vísað aftur til úrvinnslu skipulagsnefndar.$line$Skipulagsnefnd samþykkir að boða til samráðsfundar fimmtudaginn 7. ágúst 2014 kl. 17:00 í fundarsal bæjarstjórnar, með Lóðarhöfum Grænatúns 16, 18, 22, 24, Álfatúns 1 og 3.$line$$line$Lögð fram fundargerð frá samráðsfundi sem haldinn var 7. ágúst 2014. Í kjölfar athugasemda sem komu fram á samráðsfundinum er nú lögð fram breytt tillaga dags. 18. ágúst 2014 þar sem byggingarreitur er færður fjær götu sem nemur 1,6m, við það minnkar heildarbyggingarmagn um 24,3m2 og svalir á norðurhlið minnka um 4,1m2 og verða 6,9m2 að stærð. Heildarbyggingarmagn verður því 345,4m2 og nýtingarhlutfall 0,38 í stað 369,7m2 og nýtingarhlutfall 0,40 sbr. í kynntri tillögu. Suðurhlið nýbyggingar er óbreytt frá þeirri tillögu sem kynnt var á samráðsfundi.$line$$line$Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu með áorðnum breytingum dags. 18. ágúst 2014. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar og samþykkir erindið með fimm atkvæðum.

02

Skipulagsnefnd - 1243. fundur

Lagt fram að nýju erindi Einars. V. Tryggvasonar f.h. lóðarhafa varðandi nýbyggingu við Grænatún 20. Á fundi skipulagsnefndar 20.5.2014 var lögð fram ný og breytt tillaga skipulags- og byggingardeildar dags. 20.5.2014 þar sem dregið er úr byggingarmagni og byggingarreitir færðir til á lóð miðað við fyrri tillögu sbr. uppdráttum dags. 20.5.2014 í mkv. 1:500 ásamt skýringarmyndum. Skipulagsnefnd lagði til við bæjarráð og bæjarstjórn að samþykkja tillögu dags. 20. maí 2014. Á fundi bæjarráðs 5.6.2014 var erindinu vísað aftur til úrvinnslu skipulagsnefndar.$line$Skipulagsnefnd samþykkir að boða til samráðsfundar fimmtudaginn 7. ágúst 2014 kl. 17:00 í fundarsal bæjarstjórnar, með Lóðarhöfum Grænatúns 16, 18, 22, 24, Álfatúns 1 og 3.$line$$line$Lögð fram fundargerð frá samráðsfundi sem haldinn var 7. ágúst 2014. Í kjölfar athugasemda sem komu fram á samráðsfundinum er nú lögð fram breytt tillaga dags. 18. ágúst 2014 þar sem byggingarreitur er færður fjær götu sem nemur 1,6m, við það minnkar heildarbyggingarmagn um 24,3m2 og svalir á norðurhlið minnka um 4,1m2 og verða 6,9m2 að stærð. Heildarbyggingarmagn verður því 345,4m2 og nýtingarhlutfall 0,38 í stað 369,7m2 og nýtingarhlutfall 0,40 sbr. í kynntri tillögu. Suðurhlið nýbyggingar er óbreytt frá þeirri tillögu sem kynnt var á samráðsfundi.

Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu með áorðnum breytingum dags. 18. ágúst 2014. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$$line$Kristinn Dagur Gissurarson sat hjá við afgreiðslu málsins.$line$$line$Birgir H. Sigurðsson vék af fundi undir þessum lið.

03

Skipulagsnefnd - 1242. fundur

Lagt fram að nýju erindi Einars V. Tryggvasonar arkitekts, f.h. lóðarhafa Grænatúns 20. Í gildi er byggingarleyfi samþ. 25. maí 1989 fyrir tveggja hæða tvíbýli með tvöfaldri stakstæðri bílgeymslu. Í framlögðu erindi kemur meðal annars fram að einnar hæðar hús sem stendur á lóðinni verður rifið og tveggja hæða parhús reist í stað þess. Heildarbyggingarmagn verður 430m2, grunnflötur parhússins verður 250m2 og nýtingarhlutfall verður 0,47 sbr. uppdrætti dags. 13.2.2014. Umrædd breyting var kynnt í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 frá og með 24. september til 5. nóvember 2013. Athugasemdir og ábendingar bárust á kynningartíma. $line$$line$Hvað varðar fyrirhugaðar breytingar að Grænatúni 20 voru þær til umfjöllunar á síðasta ári. Þá var vísað til þess að verið væri að kynna breytingu á samþykktu deiliskipulagi sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga þar sem kveðið er á um breytingar á samþykktu deiliskipulagi. Umrædd breyting var kynnt með tilvísan í deiliskipulagsuppdrátt frá 1968: Ástúnsland og umhverfi. Í ljós hefur komið við lokaafgreiðslu málsins að umrætt deiliskipulag telst ekki vera í gildi þó svo að hús við Grænatún og Ástún hafi verið byggð samkvæmt því, nú síðast Ástún 6. Þá má jafnframt benda á að umrætt deiliskipulag er á skipulagssjá Skipulagsstofnunar auðkennt sem deiliskipulagt svæði þ.m.t. Grænatún 20. Sú villa hefur nú verið leiðrétt.$line$$line$Á fundi skipulagsnefndar 18.2.2014 var samþykkt með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir lóðarhöfum Grænatúns 16, 18, 22 og 24, Álfatúns 1, 3 og Nýbýlavegi 100, 102 og 104. Kynningu lauk 28.3.2013. Athugasemdir bárust frá íbúum, undirskriftalisti, dags. 25.3.2014. og mótt. 28.3.2014.$line$$line$Á fundi skipulagsnefndar 15.4.2014 var framlögð tillaga samþykkt ásamt umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 15.4.2014 og málinu vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Á fundi bæjarstjórnar 22.4.2014 var erindinu vísað aftur til skipulagsnefndar$line$$line$Á fundi skipulagsnefndar 20.5.2014 var lögð fram ný og breytt tillaga skipulags- og byggingardeildar dags. 20.5.2014 þar sem dregið er úr byggingarmagni og byggingarreitir færðir til á lóð sbr. uppdráttum dags. 20.5.2014 í mkv. 1:500 ásamt skýringarmyndum. Skipulagsnefnd lagði til við bæjarráð og bæjarstjórn að samþykkja tillögu dags. 20. maí 2014. Á fundi bæjarráðs 5.6.2014 var erindinu vísað aftur til úrvinnslu skipulagsnefndar.

Skipulagsnefnd samþykkir að boða til samráðsfundar fimmtudaginn 7. ágúst 2014 kl. 17:00 í fundarsal bæjarstjórnar, með Lóðarhöfum Grænatúns 16, 18, 22, 24, Álfatúns 1 og 3.$line$$line$Birgir H. Sigurðsson vék af fundi undir þessum lið.$line$Kristinn Dagur Gissurarson situr hjá við afgreiðslu málsins.

04

Bæjarráð - 2734. fundur

Lögð fram að nýju tillaga dags. 20. maí 2014 sem frestað var á fundi bæjarráðs þann 22. maí.

Bæjarráð vísar erindinu til skipulagsnefndar til úrvinnslu með fjórum atkvæðum gegn einu.Guðríður Arnardóttir lagði fram eftirfarandi bókun:<EM>"Það er búið að fresta málinu og fara yfir það og engar forsendur breyst. </EM><EM>Guðríður Arnardóttir"</EM>

05

Bæjarráð - 2732. fundur

Skipulagsnefnd leggur til við bæjarráð og bæjarstjórn að samþykkja tillögu dags. 20. maí 2014 þar sem dregið hefur verið úr byggingarmagni og byggingarreitir færðir til á lóð miðað við kynnta tillögu sem afgreidd var í skipulagsnefnd 15. apríl 2014. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð frestar afgreiðslu erindisins. Skipulagsstjóri sat fundinn undir þessum lið.

06

Skipulagsnefnd - 1239. fundur

Lagt fram að nýju erindi Einars V. Tryggvasonar arkitekts, f.h. lóðarhafa Grænatúns 20. Í gildi er byggingarleyfi samþ. 25. maí 1989 fyrir tveggja hæða tvíbýli með tvöfaldri stakstæðri bílgeymslu. Í framlögðu erindi kemur meðal annars fram að einnar hæðar hús sem stendur á lóðinni verður rifið og tveggja hæða parhús reist í stað þess. Heildarbyggingarmagn verður 430m2, grunnflötur parhússins verður 250m2 og nýtingarhlutfall verður 0,47 sbr. uppdrætti dags. 13.2.2014. Umrædd breyting var kynnt í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 frá og með 24. september til 5. nóvember 2013. Athugasemdir og ábendingar bárust á kynningartíma. $line$$line$Hvað varðar fyrirhugaðar breytingar að Grænatúni 20 voru þær til umfjöllunar á síðasta ári. Þá var vísað til þess að verið væri að kynna breytingu á samþykktu deiliskipulagi sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga þar sem kveðið er á um breytingar á samþykktu deiliskipulagi. Umrædd breyting var kynnt með tilvísan í deiliskipulagsuppdrátt frá 1968: Ástúnsland og umhverfi. Í ljós hefur komið við lokaafgreiðslu málsins að umrætt deiliskipulag telst ekki vera í gildi þó svo að hús við Grænatún og Ástún hafi verið byggð samkvæmt því, nú síðast Ástún 6. Þá má jafnframt benda á að umrætt deiliskipulag er á skipulagssjá Skipulagsstofnunar auðkennt sem deiliskipulagt svæði þ.m.t. Grænatún 20. Sú villa hefur nú verið leiðrétt.$line$$line$Á fundi skipulagsnefndar 18.2.2014 var samþykkt með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir lóðarhöfum Grænatúns 16, 18, 22 og 24, Álfatúns 1, 3 og Nýbýlavegi 100, 102 og 104.$line$$line$Kynningu lauk 28.3.2013. Athugasemdir bárust frá íbúum, undirskriftalisti, dags. 25.3.2014. og mótt. 28.3.2014.$line$$line$Á fundi skipulagsnefndar 15.4.2014 var framlaögð tillaga samþykkt ásamt umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 15.4.2014 og málinu vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Á fundi bæjarstjórnar 22.4.2014 var erindinu vísað aftur til skipulagsnefndar$line$$line$Lögð fram ný og breytt tillaga skipulags- og byggingardeildar dags. 20.5.2014. Í tillögu er miðað við að dregið sé úr byggingarmagni og byggingarreitir færðir til á lóð sbr. uppdráttum dags. 20.5.2014 í mkv. 1:500 ásamt skýringarmyndum.

Skipulagsnefnd leggur til við bæjarráð og bæjarstjórn að samþykkja tillögu dags. 20. maí 2014 þar sem dregið hefur verið úr byggingarmagni og byggingarreitir færðir til á lóð miðað við kynnta tillögu sem afgreidd var í skipulagsnefnd 15. apríl 2014. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Einn nefndarmaður sat hjá við afgreiðslu málsins. Birgir H. Sigurðsson vék af fundi undir þessum lið.

07

Bæjarstjórn - 1095. fundur

Lagt fram að nýju erindi Einars V. Tryggvasonar arkitekts, f.h. lóðarhafa Grænatúns 20. Í gildi er byggingarleyfi samþ. 25. maí 1989 fyrir tveggja hæða tvíbýli með tvöfaldri stakstæðri bílgeymslu. Í framlögðu erindi kemur meðal annars fram að einnar hæðar hús sem stendur á lóðinni verður rifið og tveggja hæða parhús reist í stað þess.

Bæjarstjórn samþykkir einróma að vísa málinu aftur til skipulagsnefndar.

08

Skipulagsnefnd - 1238. fundur

Frá byggingarfulltrúa:$line$Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju erindi Einars V. Tryggvasonar arkitekts, f.h. lóðarhafa Grænatúns 20. Í gildi er byggingarleyfi samþ. 25. maí 1989 fyrir tveggja hæða tvíbýli með tvöfaldri stakstæðri bílgeymslu. Í framlögðu erindi kemur meðal annars fram að einnar hæðar hús sem stendur á lóðinni verður rifið og tveggja hæða parhús reist í stað þess. Heildarbyggingarmagn verður 430m2, grunnflötur parhússins verður 250m2 og nýtingarhlutfall verður 0,47 sbr. uppdrætti dags. 13.2.2014. Umrædd breyting var kynnt í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 frá og með 24. september til 5. nóvember 2013. Athugasemdir og ábendingar bárust á kynningartíma. $line$$line$Hvað varðar fyrirhugaðar breytingar að Grænatúni 20 voru þær til umfjöllunar á síðasta ári. Þá var vísað til þess að verið væri að kynna breytingu á samþykktu deiliskipulagi sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga þar sem kveðið er á um breytingar á samþykktu deiliskipulagi. Umrædd breyting var kynnt með tilvísan í deiliskipulagsuppdrátt frá 1968: Ástúnsland og umhverfi. Í ljós hefur komið við lokaafgreiðslu málsins að umrætt deiliskipulag telst ekki vera í gildi þó svo að hús við Grænatún og Ástún hafi verið byggð samkvæmt því, nú síðast Ástún 6. Þá má jafnframt benda á að umrætt deiliskipulag er á skipulagssjá Skipulagsstofnunar auðkennt sem deiliskipulagt svæði þ.m.t. Grænatún 20. Sú villa hefur nú verið leiðrétt.$line$$line$Á fundi skipulagsnefndar 18.2.2014 var samþykkt með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir lóðarhöfum Grænatúns 16, 18, 22 og 24, Álfatúns 1, 3 og Nýbýlavegi 100, 102 og 104.$line$$line$Kynningu lauk 28.3.2013. Athugasemdir bárust frá íbúum, undirskriftalisti, dags. 25.3.2014. og mótt. 28.3.2014.

Samþykkt. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Birgir H. Sigurðsson vék af fundi undir þessum lið. Einn nefndarmaður sat hjá við afgreiðslu málsins.

09

Skipulagsnefnd - 1236. fundur

Frá byggingarfulltrúa:$line$Lagt fram erindi Einars V. Tryggvasonar arkitekts, f.h. lóðarhafa Grænatúns 20. Í gildi er byggingarleyfi samþ. 25. maí 1989 fyrir tveggja hæða tvíbýli með tvöfaldri stakstæðri bílgeymslu. Í framlögðu erindi kemur meðal annars fram að einnar hæðar hús sem stendur á lóðinni verður rifið og tveggja hæða parhús reist í stað þess. Heildarbyggingarmagn verður 420m2, grunnflötur parhússins verður 245m2 og nýtingarhlutfall verður 0,46 sbr. uppdrætti dags. 13.2.2014. Umrædd breyting var kynnt í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 frá og með 24. september til 5. nóvember 2013. Athugasemdir og ábendingar bárust á kynningartíma. $line$$line$Hvað varðar fyrirhugaðar breytingar að Grænatúni 20 voru þær til umfjöllunar á síðasta ári. Þá var vísað til þess að verið væri að kynna breytingu á samþykktu deiliskipulagi sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga þar sem kveðið er á um breytingar á samþykktu deiliskipulagi. Umrædd breyting var kynnt með tilvísan í deiliskipulagsuppdrátt frá 1968: Ástúnsland og umhverfi. Í ljós hefur komið við lokaafgreiðslu málsins að umrætt deiliskipulag telst ekki vera í gildi þó svo að hús við Grænatún og Ástún hafi verið byggð samkvæmt því, nú síðast Ástún 6. Þá má jafnframt benda á að umrætt deiliskipulag er á skipulagssjá Skipulagsstofnunar auðkennt sem deiliskipulagt svæði þ.m.t. Grænatún 20. Sú villa hefur nú verið leiðrétt.

Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir lóðarhöfum Grænatúns 16, 18, 22 og 24, Álfatúns 1, 3 og Nýbýlavegi 100, 102 og 104.