Hamraborg 14-38, vatnsúðakerfi útboð.
Málsnúmer: 1402852
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2758. fundur
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 12. janúar, umsögn varðandi útboð á vatnsúðakerfi í bílakjallara.
Lagt fram.
02
Bæjarráð - 2751. fundur
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 17. nóvember, lagt fram erindi frá slökkviliðsstjóra dags. 12. nóvember, varðandi möguleika á lokun bílageymslunnar vegna annmarka á eldvörnum, en dregist hefur að hefja framkvæmdir við eldvarnarkerfi af því að samþykki Hamraborgarráðsins liggur ekki ennþá fyrir.
Lagt fram.
03
Bæjarráð - 2730. fundur
Miðvikudaginn 9. apríl 2014 voru opnuð tilboð í verkið "Vatnsúðakerfi í bílastæðahús, Hamraborg 14 - 38" skv. útboðsgögnum dags. í mars 2014. Útboðið var opið. Verkefnastjóri umhverfissviðs skýrði útboðið. Kópavogsbær greiðir kostnað að hluta skv. samningi. Framkvæmdaráð samþykkir að leitað verði samninga við AH pípulagnir. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir að leitað verði samninga við AH pípulagnir.
04
Framkvæmdaráð - 63. fundur
Frá deildarstjóra eignadadeildar
Miðvikudaginn 9. apríl 2014 voru opnuð tilboð í verkið "Vatnsúðakerfi í bílastæðahús, Hamraborg 14 - 38" skv. útboðsgögnum dags. í mars 2014. Útboðið var opið. Verkefnastjóri umhverfissviðs skýrði útboðið. Kópavogsbær greiðir kostnað að hluta skv. samningi. Framkvæmdaráð samþykkir að leitað verði samninga við AH pípulagnir. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
05
Framkvæmdaráð - 61. fundur
Frá deildarstjóra eignadeildar.
Á fundi framkvæmdaráðs 3. október 2012 var samþykkt að undirbúa hönnun á eldvarnarkerfi, undirbúa útboðsgögn, ásamt því að ganga til viðræðna við húsfélagið Hamraborg 14-38 og Olís. Samþykktar teikningar og útboðsgögn liggja fyrir. Lagt fram erindi deildarstjóra eignadeildar dags. 28. febrúar 2014, þar sem óskað er eftir heimild til að bjóða út verkið "Hamraborg 14-38, vatnsúðakerfi." Fyrir liggur samþykki húsfundar Hamraborgarráðsins dags. 24. febrúar 2014 um verkefnið og þátttöku í kostnaði við verkið, sbr. samning Kópavogsbæjar og Hamraborgarráðsins dags. 7. maí 1993. Framkvæmdaráð heimilar útboðið.